Guideline LPX Chrome T-Pac Tvíhendupakki 12,9′ #8/9

> Fjölhæf tvíhenda sem nýtist víðast hvar
> Býður upp á nákvæma og fínlega framsetningu
> Í pakkanum er Halo hjól og Laxá flotlínu
> Vegur 197 gr. – línuþyngd 32-35 gr.

183.900kr.

Vinsamlega veldu inndrátt fluguhjólsins:

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

LPX Chrome T-Pac tvíhendupakkinn frá Guideline er frábær kostur fyrir þá sem ferðast með veiðigræjurnar – hvort sem er innanlands eða milli landa – og vilja ekki gera neinn afslátt af afköstum. Pakkinn samanstendur af sex-hluta LPX Chrome tvíhendu, Halo fluguveiðihjóli, undirlínu og Laxá flotlínu. Ef óskað er eftir annarri línu má taka það fram í skilaboðareitnum í körfunni.

LPX Chrome tvíhendurnar eru með ¾ djúpri hleðslu sem nýtist strax í kastinu án þess að fórna hraða eða krafti. Þær eru léttar í hönd, stöðugar og bregðast hratt við – sem gerir köstin markvissari og tenginguna við fluguna sterkari. 12,9 feta útgáfan í sex pörtum er smíðuð fyrir krefjandi skilyrði og veiðimenn sem vilja flytjanlega stöng án þess að fórna kastgetu. Hún er heldur hraðari en fjögurra hluta útgáfur, en heldur öllum helstu eiginleikum LPX-línunnar – og nýtist frábærlega í lax- og sjóbirtingsveiði við íslenskar aðstæður.

Halo hjólið sem fylgir með er úr sterku renndu áli, með lokuðu breiðkjarna og vatnsheldu diskabremsukerfi. Það er létt í vigt en býður upp á öflugt og viðhaldsfrítt bremsukerfi. Hjólið tekur slaka hratt inn og hönnun þess dregur úr líkum á línuminni – tilvalið fyrir veiði í straumvatni og krefjandi aðstæðum.

Á hjólinu er undirlína og Laxá flotlína. Laxá er hágæða flotlína sem hönnuð er sérstaklega fyrir stærri laxveiðiár á borð við Laxá í Aðaldal, Sogið og Jöklu. Hún hentar jafnt byrjendum sem reyndum veiðimönnum og nýtist við fjölbreyttar veðuraðstæður. Línan situr hátt á vatnsyfirborðinu, sem dregur úr viðnámi og gerir köstin auðveldari og árangursríkari. Rennilínan er mismunandi milli línuþyngda, enda mikilvægt að hún sé hæfilega þykk svo línan renni auðveldlega í gegnum lykkjur stangarinnar. Mjúk kápa gerir línuna sérstaklega auðvelda í meðhöndlun og þægilega að strippa.

 

Ítarupplýsingar um tvíhenduna

Leyndarmálið á bak við frábrugðna virkni stanganna er ný tækni frá Guideline sem þeir nefna C.A.P M4.0™. Um er að ræða háþróaða koltrefjauppsetningu sem skapar einstaka sveigju stanganna. Þeim er best lýst sem framsæknum miðlungshröðum (e. Medium Fast) stöngum með hraðri endurheimt (e. Fast Recovery). Toppurinn er afar stöðugur og nær að framkalla þröngan línubug, auk þess sem hann er nægjanlega öflugur til lyfta þungum sökklínum. Meðan á flugukastinu stendur tengist veiðimaðurinn neðri hluta stangarinnar sem skilar ótrúlegum áhrifum þegar stöngin er stöðvuð í fram- og afturkastinu. Þetta gerir það að verkum að unnt er að ná löngum köstum með afar litlu afli. Hliðarstöðugleiki LPX Chrome gerir það að verkum að flugulínan fylgir stönginni einkar vel þegar henni er sveiflað og snúið í kastinu. Þessir eiginleikar leiða af sér nákvæmari fluguköst, aukinn línuhraða og betri línubug. Þetta er sannarlega ný virkni sem markar ákveðin þáttaskil til framtíðar hjá Guideline.

Hjólasæti LPX Chrome flugustanganna er sérhannað og er korkurinn í handfanginu fyrsta flokks. Til að tryggja langa endingu er það búið sérstökum gúmmí-styrkingum sem munu standa tímans tönn. Virkni hverrar stangar er misjöfn eftir lengd og línuþyngd til að nýtast veiðimönnum við ólíkar aðstæður.

  • Háþróuð A.P M4.0™ koltrefjauppsetning.
  • Miðlungshröð með uppbyggingu sem hraðar endurheimt.
  • Fjölhæf stöng sem ræður við allar línugerðir.
  • Ofurléttar með lágri sveifluþyngd sem gerir þér kleift að veiða lengi án þess að þreytast.
  • Blágrá gljáandi áferð með samsvarandi vöf.
  • Hágæða korkur með sérstakri styrkingu.
  • Rafhúðað hjólasæti með einstöku álagsþoli.
  • Léttar og tæringarþolnar lykkjur úr títani með zirconia-innleggi.
  • Efri lykkjur eru PVD-húðaðar með mattri grárri áferð.
  • Stöngin kemur í stangarsokk og hólk sem unninn er úr endurunnum efnum.

 

C.A.P M4.0 tæknin

C.A.P M4.0™ koltrefjauppsetningin skapar einstaka sveigju með hraðri endurheimt og mikilli nákvæmni. C.A.P tæknin er með flóknu áslægu mynstri, CAP (e. Complex Axial Pattern) sem parað er við einátta koltrefjauppbyggingu. Með tækninni eru koltrefjalög lögð upp í mismunandi horn hvert á annað til að hámarka styrk og stöðuleika í allar áttir. Í einátta óofnu koltrefjamynstri liggja allar trefjarnar í einni samsíða stefnu, sem tryggir hámarksstyrk stangardúksins. M4.0 er kvoðan eða plastefnið (e. Resin) sem notað er í þessháttar uppbyggingu. Vegna þeirra eiginleika sem efnið hefur er fyllt betur í eyður stangardúksins en með öðrum hefðbundnum efnum sem leiðir af sér meiri styrk. Það dregur einnig úr magni plastefnisins sem annars þyrfti að nota sem endurspeglast í því hve léttar stangirnar eru.