LPX Chrome T-Pac tvíhendupakkinn frá Guideline er samsettur fyrir þá sem ferðast á milli landa eða landshluta til að elta lax eða aðra stærri bráð. Hann samanstendur af LPX Chrome tvíhendu í sex hlutum, Halo fluguveiðihjóli, undirlínu og Sandá tvíhendulínu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
LPX Chrome tvíhendurnar eru hannaðar og framleiddar með glænýrri virkni frá Guideline. Þær eru með ¾ djúpri hleðslu og afl sem nýtist snemma í kastinu án þess að draga úr hraða stanganna. Þær eru léttleikandi, búa að miklum stöðugleika og með viðbragðsflýti sem tengir veiðimenn við köstin á alveg nýjan hátt. Stangirnar eru í sex hlutum og hugsaðar sérstaklega fyrir þá sem þurfa á flutningahæfni og traustri smíði að halda. Þær eru fullkomið verkfæri til að nota í íslenskum ám og gerðar til að takast á við lax og sjóbirting. 6-hluta tvíhendurnar eru heldur hraðari en 4-hluta stangirnar, en búa að sömu kjarnagæðum og eiginleikum. Þær eru af miklum gæðum og bjóða upp á eiginleika sem sjaldnast sjást í stöngum á jafn hagstæðu verði.
Halo fluguveiðihjólið sem fylgir með í stangarpakkanum er frá Guideline og er framleitt úr renndu áli. Það er tiltölulega eðlislétt og er algjörlega lokað svo ekki er hætta á að línan festist á milli hjólsins og spólunnar. Halo er með vatnsþéttu og öflugu diskabremsukerfi sem er svo gott sem viðhaldsfrítt. Hjólið er breiðkjarna (e. full frame), sem gerir veiðimönnum kleift að ná slaka inn hratt, auk þess sem hönnunin dregur úr líkum á línuminni.
Á hjólinu er undirlína og Sandá flotlína – vönduð og vel hönnuð tvíhendulína þar sem skothaus og rennilína renna saman í eina samfellda heild. Línan er þróuð með fjölbreyttar veiðiaðferðir í huga og hentar einstaklega vel í meðalstórum ám þar sem nauðsynlegt er að geta brugðist við breytilegum aðstæðum. Hún er tiltölulega framþung og nýtist því mjög vel á stuttu færi þar sem hægt er að kasta með aðeins lítinn hluta skothaussins fyrir utan stangartoppinn. Hún stendur sig einnig frábærlega við meðallöng köst, hvort sem veitt er með smáflugum eða túpum. Sandá er fjölhæf lína sem hentar jafnt fyrir veltiköst sem og hefðbundin yfirhandarköst. Til að hámarka hleðslu stangarinnar við lengri köst er best að hafa litaskilin milli skothauss og rennilínu staðsett rétt við topp stangarinnar – þannig næst aukinn kraftur og stöðugleiki í kastinu.
Ítarupplýsingar um tvíhenduna
Leyndarmálið á bak við frábrugðna virkni stanganna er ný tækni frá Guideline sem þeir nefna C.A.P M4.0™. Um er að ræða háþróaða koltrefjauppsetningu sem skapar einstaka sveigju stanganna. Þeim er best lýst sem framsæknum miðlungshröðum (e. Medium Fast) stöngum með hraðri endurheimt (e. Fast Recovery). Toppurinn er afar stöðugur og nær að framkalla þröngan línubug, auk þess sem hann er nægjanlega öflugur til lyfta þungum sökklínum. Meðan á flugukastinu stendur tengist veiðimaðurinn neðri hluta stangarinnar sem skilar ótrúlegum áhrifum þegar stöngin er stöðvuð í fram- og afturkastinu. Þetta gerir það að verkum að unnt er að ná löngum köstum með afar litlu afli. Hliðarstöðugleiki LPX Chrome gerir það að verkum að flugulínan fylgir stönginni einkar vel þegar henni er sveiflað og snúið í kastinu. Þessir eiginleikar leiða af sér nákvæmari fluguköst, aukinn línuhraða og betri línubug. Þetta er sannarlega ný virkni sem markar ákveðin þáttaskil til framtíðar hjá Guideline.
Hjólasæti LPX Chrome flugustanganna er sérhannað og er korkurinn í handfanginu fyrsta flokks. Til að tryggja langa endingu er það búið sérstökum gúmmí-styrkingum sem munu standa tímans tönn. Virkni hverrar stangar er misjöfn eftir lengd og línuþyngd til að nýtast veiðimönnum við ólíkar aðstæður.
- Háþróuð A.P M4.0™ koltrefjauppsetning.
- Miðlungshröð með uppbyggingu sem hraðar endurheimt.
- Fjölhæf stöng sem ræður við allar línugerðir.
- Ofurléttar með lágri sveifluþyngd sem gerir þér kleift að veiða lengi án þess að þreytast.
- Blágrá gljáandi áferð með samsvarandi vöf.
- Hágæða korkur með sérstakri styrkingu.
- Rafhúðað hjólasæti með einstöku álagsþoli.
- Léttar og tæringarþolnar lykkjur úr títani með zirconia-innleggi.
- Efri lykkjur eru PVD-húðaðar með mattri grárri áferð.
- Stöngin kemur í stangarsokk og hólk sem unninn er úr endurunnum efnum.
C.A.P M4.0 tæknin
C.A.P M4.0™ koltrefjauppsetningin skapar einstaka sveigju með hraðri endurheimt og mikilli nákvæmni. C.A.P tæknin er með flóknu áslægu mynstri, CAP (e. Complex Axial Pattern) sem parað er við einátta koltrefjauppbyggingu. Með tækninni eru koltrefjalög lögð upp í mismunandi horn hvert á annað til að hámarka styrk og stöðuleika í allar áttir. Í einátta óofnu koltrefjamynstri liggja allar trefjarnar í einni samsíða stefnu, sem tryggir hámarksstyrk stangardúksins. M4.0™ er kvoðan eða plastefnið (e. Resin) sem notað er í þessháttar uppbyggingu. Vegna þeirra eiginleika sem efnið hefur er fyllt betur í eyður stangardúksins en með öðrum hefðbundnum efnum sem leiðir af sér meiri styrk. Það dregur einnig úr magni plastefnisins sem annars þyrfti að nota sem endurspeglast í því hve léttar stangirnar eru.