Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9′ #6

> Tilvalin í hverskonar silungsveiði
> Ræður vel við vindasamar aðstæður
> Í pakkanum er Fario LW hjól og Fario CDC flotlína
> Vegur 78 gr. – línuþyngd 13-15 gr.

131.900kr.

Vinsamlega veldu inndrátt fluguhjólsins:

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Glæsilegur fluguveiðipakki í silungsveiðina sem inniheldur LPX Tactical flugustöng, Fario LW fluguveiðihjól, undirlínu og Fario CDC flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.

LPX Tactical eru háþróaðar silungsveiðistangir úr smiðju Guideline. Þær hafa skýra og mjög nákvæma virkni sem losnar úr læðingi smám saman eftir því sem stöngin er hlaðin meira. Stangirnar eru tiltölulega hraðar með djúpri ¾ hleðslu og eru einstaklega stöðugar á kastferlinum. Þær eru mjög aðgengilegar og henta veiðimönnum á öllum kunnáttustigum. Þegar kastað er á styttra færi veitir toppurinn og miðjuhluti stangarinnar veiðimanninum mikla næmni, sem er mikilvæg við viðkvæmar aðstæður. Þegar kastað er á lengra færi virkjast neðri hluti stangarinnar og veitir allan þann kraft sem nauðsynlegur er. LPX Tactical eru þrátt fyrir hagstætt verðlag framúrskarandi stangir. Þær eru afskaplega liprar, en um leið nægjanlega stífar til að takast á við lengri köst og mikinn vind. Þrátt fyrir það fara þær vel með örgrönnum taumum þegar aðstæður kalla á fíngerða framsetningu.

Þær stangir sem eru 9 fet að lengd eru ofurléttar og henta þeim sem kjósa klassískar flugustangir hvað lengd varðar. Þær eru gefnar upp fyrir rétta línuþyngd og veita notandanum eftirsóknarverða léttleikandi tilfinningu. Stangirnar eru ótrúlega fjölhæfar og nýtast í ólíkum aðstæðum. Þær verða fyrir minni áhrifum af vindi en 9,9 feta stangirnar og eru ögn hraðari. Línuþyngdir #2-3 henta frábærlega í púpu- og þurrfluguveiði þar sem fíngerð framsetning og grannir taumar skipta höfuðmáli. Stangir í línuþyngd #4-5 eru fjölhæfari og nýtast í púpur og þurrflugur við hverskyns aðstæður. Eiginleikar þeirra koma bersýnilega í ljós á lengra sem skemmra færi og með ólíkum gerðum flugukasta. Línuþyngd #6 er heppileg fyrir þá sem veiða á opnum svæðum þar sem vindur getur orðið mikill. Sú stöng nýtist vel í púpuveiði en kastar þó straumflugum einnig. Línuþyngd #7 er öflugasta stöngin í seríunni. Hún er hönnuð til að kasta stórum straumflugum og fer létt með þyngstu sökklínur.

Stönginni fylgir Halo fluguveiðihjól frá Guideline sem framleitt er úr renndu áli. Hjólið er tiltölulega eðlislétt og er algjörlega lokað svo ekki er hætta á að línan festist á milli hjólsins og spólunnar. Halo er með vatnsþéttu og öflugu diskabremsukerfi sem er svo gott sem viðhaldsfrítt. Hjólið er breiðkjarna (e. full frame) sem gerir veiðimönnum kleift að ná slaka inn hratt, auk þess sem hönnunin dregur úr líkum á línuminni.

Hjólið er uppsett með undirlínu og Fario CDS flotlínu frá Guideline. Hún er ákaflega fíngerð, hljóðlát og framkallar ofurþröngan línubug. Línan er í uppáhaldi margra enda nýtist hún vel í krefjandi aðstæðum þar sem framsetning flugunnar skiptir höfuðmáli. Fario CDS er einkar þvermálslítil sem er eiginleiki sem hjálpar línunni að skera sig í gegnum vind og leggja langa tauma með mikilli nákvæmni. Með því að hafa fremri hluta línunnar (e. front taper) frekar stuttan en með góðri jafnvægisdreifingu þyngdar og afls, mun línan þrátt fyrir að vera svo þunn, rétta úr löngum taumum áreynslulaust.

Miðhluti og aftari hluti línunnar (e. belly and back taper) er tiltölulega langur sem veitir þröngan línubug og auðveldar leiðréttingu línunnar í framkastinu. Línan helst hærra í loftinu alla leið aftur, öfugt við flugulínur sem eru afturþyngri. Það að línan haldi hæð í framkastinu er frábær eiginleiki þegar pláss fyrir aftan er takmarkað, en einnig þegar kastað er í lágri stöðu, s.s. á bát eða á hnjánum. Kápa línunnar er einstaklega sleip og hefur mikinn þéttleika. Þannig er unnt að halda þvermáli línunnar litu og lágmarka vindmótsstöðu. Fario CDS er byggð á fléttuðum fjölþráða kjarna sem er um 12 pund að styrk. Haus línunnar er grængrár en aftari hluti hennar er hvítur svo auðveldara sé að sjá skilin þar á milli. Á báðum endum eru fíngerðar lykkjur. Lengd haussins er 11-12,5 metrar eftir línuþyngd og er heildarlengd línunnar 25-27,5 metrar.

Ítarupplýsingar um stöngina í pakkanum

 

  • Háþróuð A.P M4.0™ koltrefjauppsetning.
  • Frábærir kasteiginleikar.
  • Fer vel með örgranna tauma við viðkvæmar aðstæður.
  • Mött áferð stangarinnar sér til þess að sólarljós endurkastist ekki á veiðistaðinn.
  • Náttúrulega grátt útlit með grænum blæ og dökkgrænum vafningum.
  • Handfang úr vönduðum korki með háum þéttleika.
  • Hjólasæti með viðarinnleggi og ágreyptu Tactical-merki.
  • Rafhúðaðir málmhlutar eru með mattri áferð til að endurkasta síður sólarljósi.
  • Þökk sé nýrri tækni eru stangirnar einstaklega léttar.
  • Léttar lykkjur úr títani með zirconia-innleggi.
  • Smærri lykkjur eru PVD-húðaðar með mattri grárri áferð.
  • Stöngin kemur í stangarsokk og hólk sem unninn er úr endurunnum efnum.

 

C.A.P M4.0 tæknin

C.A.P M4.0™ koltrefjauppsetningin skapar einstaka sveigju með hraðri endurheimt og mikilli nákvæmni. C.A.P tæknin er með flóknu áslægu mynstri, CAP (e. Complex Axial Pattern) sem parað er við einátta koltrefjauppbyggingu. Með tækninni eru koltrefjalög lögð upp í mismunandi horn hvert á annað til að hámarka styrk og stöðugleika í allar áttir. Í einátta óofnu koltrefjamynstri liggja allar trefjarnar í einni samsíða stefnu, sem tryggir hámarksstyrk stangardúksins. M4.0 er kvoðan eða plastefnið (e. Resin) sem notað er í þessháttar uppbyggingu. Vegna þeirra eiginleika sem efnið hefur er fyllt betur í eyður stangardúksins en með öðrum hefðbundnum efnum sem leiðir af sér meiri styrk. Það dregur einnig úr magni plastefnisins sem annars þyrfti að nota sem endurspeglast í því hve léttar stangirnar eru.