Fitjá- Flotlína

Fitjá er flotlína fyrir einhendur, hönnuð til að gera fluguköstin einfaldari og árangursríkari. Stuttur skothausinn hjálpar stönginni að hlaðast fljótt og gerir línuna sérstaklega hentuga fyrir byrjendur.

12.900kr.

Fitjá Flotlína

Fitjá er öflug flotlína fyrir einhendur, hönnuð með einföld og skilvirk köst að leiðarljósi. Hún er með stuttan skothaus sem hjálpar til við að hlaða stöngina og koma línunni örugglega frá sér. Þessi uppbygging gerir línuna sérstaklega aðgengilega fyrir þá sem eru að byrja í fluguveiði, en hún nýtist jafnframt reyndari veiðimönnum sem vilja stutta og framþunga línu.

Stutti skothausinn gerir það að verkum að línan fer greiðlega fram, án mikillar vinnu í loftinu. Þannig verður kastið einfaldara og skilvirkara. Fitjá er hönnuð til að leggjast eins mjúklega á vatnsflötinn og mögulegt er, en vera um leið nægilega öflug til að köstin verði markviss og árangursrík. Þá réttir hún auðveldlega úr lengri taumum, hvort sem kastað er með nettum flugum eða stærri túpum. Línan nýtist sérstaklega vel í lax- og silungsveiði í straumvatni, en má einnig nota í stöðuvötnum.

Fitjá er lína sem gerir veiðina einfaldari. Henni er einstaklega auðvelt að kasta, hún er þægileg í stjórn og býður upp á fjölbreytta notkun. Fyrir byrjendur getur hún hjálpað til við að byggja upp öryggi í köstunum, en fyrir reyndari veiðimenn er hún þægileg flugulína sem nýtist við margar aðstæður.

Helstu eiginleikar:
• Stuttur skothaus sem hjálpar stönginni að hlaðast fljótt
• Sérlega hentug fyrir byrjendur í fluguveiði
• Kastast fram með lítilli fyrirhöfn
• Hönnuð til að leggjast á vatnsflötinn með lágmarks raski
• Ber allar helstu gerðir flugna
• Sterkar lykkjur á báðum endum fyrir skjót skipti
• Sleip kápa, sterkur kjarni og ID-merking fyrir auðkenningu
• Fáanleg í línuþyngdum #5–#8