Fishpond Thunderhead Eco Camo – Bakpoki

Verndaðu allan þinn búnað fyrir verstu veðrum með nýja vatnshelda bakpokanum frá Fishpond. Hvort sem þú ert á leið í langa gönguferð eða vilt einfaldlega hafa hlutina meðferðis á veiðum þá rúmar Thunderhead Eco allt sem þarf. Bakpokinn er sá öflugasti sem Fishpond hefur nokkru sinni framleitt.

54.995kr.

Á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Verndaðu allan þinn búnað fyrir verstu veðrum með nýja vatnshelda bakpokanum frá Fishpond. Hvort sem þú ert á leið í langa gönguferð eða vilt einfaldlega hafa hlutina meðferðis á veiðum þá rúmar Thunderhead Eco allt sem þarf. Bakpokinn er sá öflugasti sem Fishpond hefur nokkru sinni framleitt, en til marks um það þá mun hann halda innihaldinu þurru jafnvel þótt hanni fari á kaf.

Hið nýja NewStream efni er ógnarsterkt og þolir gríðarlegt álag. Rennilásar eru að fullu vatnsheldir og með fullkominni ljúfloku. Þá er á bakpokanum traust burðarkerfi sem er einkar þægilegt í notkun. Hann er auðvelt að bera í langan tíma enda með góðum stuðningi við bak og mitti. D-lykkjur til að hengja hverskonar áhöld, tæki eða tól eru víða á pokanum. Þá eru festingar á sitthvorri hliðinni undir stangarhólka eða samsettar stangir. Að innanverðu er einn renndur vasi auk plastvasa undir smærri hluti. Bakpokanum fylgir stillanlegt mittisbelti, sem má fjarlægja þegar ekki þarf á að halda.

Stærð bakpokans er 53 x 30 x 23 cm, hann vegur 1,28 kg og rúmar 28 lítra. Fáanlegur í þremur litum.

Sjálfbærni

Ný vara, gamalt efni

Fishpond er leiðandi fyrirtæki á markaði þegar kemur að sjálfbærri framleiðslu. Fyrir meira en áratug síðan hóf fyrirtækið að nota ónýt fiskinet til framleiðslu á töskum og fylgihlutum. Í dag eru nær allar vörur Fishpond framleiddar úr endurunnum efnum, s.s. netum og plastflöskum. Þannig tekst fyrirtækinu að skapa nýja hluti úr gömlum efnum, umhverfinu til heilla.