Með nýjustu tækni og efnum hefur Echo búið til stöng sem hentar ákaflega vel fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. Hvort sem þú ert að leita eftir þinni fyrstu flugustöng eða vantar stöng til vara, þá er Echo Lift þess virði að skoða.
Lift stangirnar eru hannaðar út frá Echo Base stöngum sem notið hafa gríðarlegra vinsælda um langt skeið. Þessi nýja hönnun betrumbætir þá fyrri umtalsvert. Lift stangirnar eru talsvert léttari en forverarnir auk þess sem mun auðveldar er að hlaða þær. Lögun handfangsins hefur verið breytt til auðvelda veiðimönnum að bæta köstin og auka þannig ánægjuna við veiðar. Einkar auðvelt er að hlaða hinar nýju stangir, óháð því hvaða kasttækni er beitt. Þrátt fyrir aukin gæði og bætta hönnun helst verðið enn lágt. Það má því segja að fáar stangir á markaðnum sem komast nærri Echo Lift þegar litið er til hagstæðs verðs og gæða.
Echo Lift eru meðalhraðar flugustangir sem búa að miklum krafti og nákvæmni. Þær eru í fjórum hlutum og eru fáanlegar í línuþyngdum #3 – #8. Lykkjur eru úr krómi og haldfangið úr slitsterkum korki. Stöngunum fylgir stangarpoki og stangarhólkur auk lífstíðarábyrgðar frá framleiðanda.
Loon Fresh Pants - Lyktareyðir
Fishpond Blizzard Kælitaska
Loon High Tack Swax - Dubbing vax
Tubefly Fluguhnýtingasett
Loon Low Tack Swax - Dubbing vax
Patagonia Guidewater S. Green - Vatnsheld Mittistaska
Taumaklippur
Echo Lift 9' #7
Morsetto Tubefly Hnýtingaþvinga
Loop 7X 10' #7
Plaströr fyrir microtúpur
Loop Z1 12,4' #7
Guideline LPX Chrome 12,3' #6/7
Loop 7X 9' #5
Nikwax TX. Direct Wash-in Vatnsvörn
Tube Fly Tool - Túputól
Loon Áhaldaspóla
Stonfo Bobbin Elite - Keflishalda
Hnútaherðari
Guideline Elevation 9' #5
Áhaldaspóla
Loop Logo Húfa Vínrauð
Loop Connecting Derhúfa
Nikwax Basewash Travel Gel
Loop 7X 9,6' #6 







