Driva Zip Vöðlur

Driva rennilásavöðlurnar frá Guideline sameina mjúkt og endurunnið efni við öfluga vatnsvörn og góða öndun. Þær eru með TiZip rennilás og rúmgóðum vösum. Léttar og þægilegar vöðlur fyrir langa veiðidaga.

106.900kr.

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar
SKOÐA STÆRÐATÖFLU

Guideline Driva rennilásavöðlur

Driva rennilásavöðlurnar frá Guideline eru saumaðar úr slitsterku, endurunnu pólýester efni sem er mjúkt viðkomu, létt og þægilegt, en jafnframt endingargott. Sniðið er vel mótað yfir hné og læri, sem gerir þær sérlega hentugar fyrir þá sem ganga mikið í veiði – jafnvel þegar hlýtt er í veðri.

Driva eru búnar öflugri vatnsvörn (20.000 mm) og góðri öndun, en efnin eru bluesign® vottuð. Vöðlurnar eru með með TiZip® MasterSeal rennilás sem auðveldar að fara í og úr þeim – með öruggri þéttingu og miklum þægindum. Axlabandakerfið er stillanlegt, teygjanlegt og með nýrri Duraflex® festingu aftan á bak. Mittisbeltið er stíft en teygjanlegt og heldur vel, með lykkjum til að festa aukahluti eins og vaðstaf eða töng.

Að framan eru tveir vatnsfráhrindandi YKK AquaGuard® rennilásvasar með góðu geymsluplássi, og þar fyrir neðan eru opnir vasar til að verma hendur– fullkomnir á köldum veiðidögum.  Á vöðlunum eru tvær Hypalon-festingar fyrir aukahluti, auk innri lóðrétts rennilásvasa með AquaGuard® rennilás og festingarflipa fyrir þurrkun á flugum. Á bakinu er D-lykkja fyrir háf.

Sokkarnir eru úr Comfort Plus™ neoprene og eru hannaðir með nákvæmri mótun fyrir gott aðhald og þægindi. Driva LARGE stærðin fæst með tveimur sokkastærðum: #9–11 eða #12–13. Neðst eru Hybrid Gravel Guard™ hlífar sem sameina aðalefnið og styrkt neoprene með góðri teygju – og liggja þétt að til að halda út sandi og smásteinum. Á framhlið er falinn, tæringarfrír krókur sem heldur hlífinni á sínum stað og kemur í veg fyrir að línan flækist. Vöðlurnar eru afhentar í burðarpoka sem andar vel og hentar í geymslu og flutning.

Helstu eiginleikar:
• Endurunnið fjögurra laga pólýesterefni
• Scale™ PRO himna – 20.000 mm vatnsheldni og 7.000 g/m²/24h öndun
• TiZip® MasterSeal rennilás – auðvelt að fara í og úr
• PFAS-frí DWR og bluesign® vottað efni
• Stillanlegt og teygjanlegt axlabandakerfi með Duraflex® festingu
• Tveir brjóstvasar með AquaGuard® rennilásum og opnir fóðraðir vasar
• Comfort Plus™ neoprene sokkar – mótaðir eftir fótum
• Hybrid Gravel Guard™ hlífar – með földum krók
• Netmöskvapoki fylgir