CND Nordic 13′ #8/9 er fjögurra hluta tvíhenda sem vegur aðeins 212 grömm. Þetta er stöng sem sameinar kraft og nákvæmni – raunverulega úlfur í sauðagæru! Hún kemur kemur á óvart með miklum afköstum og kastgetu, enda fáar 13 feta stangir sem búa yfir jafn miklu afli. Hún hentar þeim sem vilja styttri alhliða stöng í stað hefðbundinnar 14 feta stangar – en vilja engu fórna í afli eða kastgetu.
Stöngin er hröð og tekst jafnt á við þungar sökklínur og hefðbundnar flotlínur, án þess að missa fínleika. Hún ræður vel við stóra fiska, en veitir líka mikla ánægju í baráttu við smálaxa. Kastlengdirnar sem stöngin nær að skila koma veiðimönnum oft á óvart – sérstaklega miðað við stutta lengd hennar.
Markmiðið með þróun CND Nordic stangarlínunnar var að smíða Scandi-stöng í eigin stíl, með kraftmeiri topp og betri tilfinningu niður skaftið. Þessi nálgun hefur skilað sér í einstökum stöngum sem hafa hlotið frábærar viðtökur bæði í prófunum og notkun.
Nordic stangirnar eru úr nýrri gerð kolefnis, með Alps hjólasæti, vönduðum korki og Cordura-hólki. Með yfir 100 tegundum prepreg-kolefnis í valinu tókst að ná fram þeirri spennu og sértæku sveigju sem Scandi-stangir krefjast. Micro pitch-tækni bætir við hraða og fínhreyfanleika, en Hitena-epoxý yfir vafningum tryggir langa endingu og slitstyrk.
Þetta er snör og öflug alhliða tvíhenda sem hentar í krefjandi veiði, jafnvel með sökklínu og í löng köst – en án þess að missa þá gleði sem smærri fiskar veita.
Við mælum með eftirfarandi línum á stöngina:
Jöklu sem vegur 500 grain + 15‘ línuenda.
Sog skothausinn sem vegur 500 grain + 15′ línuenda.
Rangá sem vegur 450 grain + 15‘ línuenda.