Showing all 9 results

Scott flugustangir

Scott flugustangir eru þekktar fyrir frábæra kasteiginleika, nákvæmni og ótvíræð gæði. Í tæp 50 ár hefur félagið unnið að fullkominni hönnun, handverki og bættri frammistöðu sinna stanga. Fyrirtækið leiðandi á markaði enda hefur einstakt handbragð og gæði framleiðslunnar skapað því sterka stöðu. Allar flugustangir frá fyrirtækinu eru handsmíðaðar frá grunni en á bakvið framleiðslu þeirra liggur mikið hugvit, bæði í efnisvali og uppbyggingu.

Sérstaða Scott

Flugustangir frá fyrirtækinu hafa ákveðna sérstöðu á markaði sökum þriggja megin þátta. Í fyrsta lagi hvernig efni þeirra er lagt upp og mjókkað fram í endann. Í öðru lagi eru stangarhlutarnir settir saman þannig að broddendi gengur inní næsta hluta. Þegar stangir eru jafnvel í sex hlutum skiptir miklu máli að sverleiki stangarinnar aukist ekki á samskeytum og vinnslan verði ójöfn. Sérstakir stillipunktar tryggja að stöngin verði ávallt rétt sett saman. Í þriðja lagi stillir Scott saman sveigjanleika stangarhlutanna miðað við þyngd og sveigjanleika með sérstakri aðferð. Loks má nefna að öllum flugustöngum fylgir lífstíðarábyrgð til upprunalegs kaupanda.