Sealskinz 100% Vatnsheldir Ultra Grip Hanskar – All Weather

Notalegir 100% vatnsheldir hanskar frá Sealskinz með sömu einstöku tækninni og fyrirtækið notar í framleiðslu vatnsheldra sokka. Hanskarnir eru hlýir og þægilegir og henta vel við fjölbreyttar aðstæður.

10.495kr.

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

100% vatnsheld tækni í þægilegum hönskum

Notalegir 100% vatnsheldir hanskar frá Sealskinz með sömu einstöku tækninni og fyrirtækið notar í framleiðslu vatnsheldra sokka. Hanskarnir eru hlýir og þægilegir og henta vel við fjölbreyttar aðstæður. Þeir eru með góðu gripi og halda höndunum þurrum í rigningu og snjó án þess að hefta hreyfingu þeirra.

Vandaðir fjölnota hanskar

Hanskarnir eru með sílikonprentuðum fingrum til að hámarka grip notandans, en einnig til að stjórna tækjum með snertiskjá.

Nýstárleg efni og framleiðsla

Sealskinz notar einstaka þriggja laga uppbygginu í hanskana, þá sömu og fyrirtækið notar við framleiðslu á útivistarsokkunum. Hanskarnir eru með 100% vatnsheldri filmu að utanverðu, en úrvals merino-ull að innanverðu. Ullin veitir mikla hlýju og dregur úr svitamyndun. Ytra byrði hanskans er úr nælonefni með fjögurra þátta teygju sem tryggir aukin þægindi og meiri hreyfanleika.

Tilvaldir í fjölbreytta útivist

Hannaðir til að veita ótrúlegt grip, 100% vatnsheldni og frábæra öndun. Hanskarnir nýtast við ýmsa iðju, s.s. hjólreiðar, útihlaup, veiði, gönguferðir og sambærilega afþreyingu.

Framúrskarandi öndunareiginleikar

Vert er að benda á óviðjafnanlega öndun vatnsheldu filmunnar sem hleypir svita og gufu út, en raki og bleyta kemst ekki inn. Þetta skapar notandanum aukin þægindi í krefjandi aðstæðum og hreyfingu sem reynir á þolið.

Handsaumaðir og prófaðir

Sérhver hanski er handsaumaður í Bretlandi og er vatnsheldni þeirra prófuð áður en þeir fara á markað.