Nú er orðið ljóst að fáir munu ferðast út fyrir landsteinana á næstu vikum og því upplagt að ráðstafa frítímanum í stangaveiðina. Nýtt veiðitímabil hefst lögum samkvæmt 1. apríl og opna þá fjölmörg vatnasvæði fyrir veiðimönnum. Til að einfalda leitina eftir vorveiðileyfum hafa Veiðiflugur tekið saman lista yfir flestar ár og vötn sem opna í apríl. Listinn skiptist í þrjá hluta, þ.e. sjóbirtingsveiði, veiði á staðbundnum urriða- og bleikju í ám, auk vatna sem m.a. tilheyra Veiðikortinu.
Sjóbirtingur
Yfirlitskort af sjóbirtingsám sem opna í apríl. (Heimild: Kortavefsjá)
Eldvatn
Eldvatn í Meðallandi er spennandi sjóbirtingsá sem staðsett er í Skaftafellssýslu, skammt frá Kirkjubæjarklaustri. Þar er sjóbirtingsvon mikil, en aðeins er veitt á flugu og skal öllum fiski sleppt. Í Eldvatni eru leyfðar 6 stangir sem seljast allar saman í pakka ásamt veiðihúsi.
Eyjafjarðará
Eyjafjarðará við Akureyri er ein þekktasta sjóbleikjuá landsins. Áin býr einnig að sterkum sjóbirtingsstofni sem hefur vaxið töluvert á síðustu árum. Vorveiði hefst 1. apríl á neðri svæðum Eyjafjarðarár, en uppistaða veiðinnar er sjóbirtingur. Á ósasvæðinu og svæðum 0 og 1 er heimilt að veiða með flugu og spún, en aðeins flugu á þeim efri. Öllum fiski bera að sleppa. Hægt er að kaupa staka daga frá morgni til kvölds en tvær stangir eru leyfðar á hverju svæði.
Fossálar
Fossálar eru samheiti á nokkuð vatnsmikilli á sem staðsett er rétt austan við Kirkjubæjarklaustur. Þar er veitt er á þrjár stangir sem leigjast saman ásamt góðu veiðihúsi. Aðeins er veitt á flugu og er áin leigð út í tvo daga í senn. Á vorin er uppistaða veiðinnar sjóbirtingur og er skylduslepping á öllum veiddum fiski.
Geirlandsá
Geirlandsá á Síðu er býsna löng bergvatnsá sem rennur í Skaftá við Kirkjubæjarklaustur. Áin skipar sér á stall meðal bestu sjóbirtingsáa landsins og er náttúrufegurð þar mikil. Í Geirlandsá hefst vorveiðin 1. apríl og eru 4 stangir seldar saman í pakka. Veiðihús fylgir með keyptum veiðileyfum með fjórum tveggja manna herbergjum. Heimilt er að veiða á flugu og skal öllum fiski sleppt.
Náttúrufegurð er mikil við Geirlandsá.
Grímsá
Grímsá í Lundareykjadal er fyrst og fremst þekkt sem laxveiðiá. Hún býr þó einnig að nokkuð sterkum sjóbirtingsstofni og hefur vorveiði verið leyfð í ánni síðastliðin ár. Grímsá er í um 70 km. fjarlægð frá Reykjavík og því er tilvalið fyrir höfuðborgarbúa að skreppa til veiða í einn dag. Aðeins er veitt á tvær stangir í Grímsá sem seljast saman án gistingar. Fluga er eina leyfilega agnið og ber undantekningarlaust að sleppa öllum fiski.
Hólsá
Veiðisvæði austurbakka Hólsár nær frá ármótum Eystri- og Ytri Rangár og alla leið að sjó. Í ánni er stunduð vorveiði í apríl og er uppistaða veiðinnar sjóbirtingur og staðbundinn urriði. Sex stangir eru leyfðar á svæðinu og fylgir seldum veiðileyfum glæsilegt veiðihús sem staðsett er rétt neðan við ármót Eystri Rangár og Þverár. Leyft er að veiða á bæði flugu og spún en öllum fiski skal sleppt.
Húseyjarkvísl
Húseyjarkvísl í Skagafirði er á nýjan leik orðin ein gjöfulasta sjóbirtingsá landsins. Áin er staðsett rétt neðan við Varmahlíð og rennur í Héraðsvötn sunnan Sauðárkróks. Vorveiði er heimil á silungasvæði árinnar frá 1. apríl og er aðeins veitt á flugu. Þrjár stangir eru seldar saman ásamt góðu veiðihúsi og skal öllum fiski sleppt.
Vænn sjóbirtingur úr Húseyjarkvísl.
Hraun í Ölfusi
Veiðisvæðið fyrir landi Hrauns er staðsett í Ölfusi vestan Ölfusárósa. Á vorin er þar mest um sjóbirting, þó allar ferskvatnstegundir veiðist á svæðinu. Seldar eru dagsstangir á hagstæðu verði og er leyfilegt að nota flest agn.
Laxá í Kjós
Laxá í Kjós rennur í Hvalfjörð og er í um 40 km fjarlægð frá Reykjavík. Hún er helst þekkt sem laxveiðiá en í hana gengur þó einnig mikið af sjóbirtingi. Vorveiði hefur verið stunduð í einhverju mæli í neðri hluta árinnar, en veitt er á fjórar stangir. Öllum fiski ber að sleppa og er aðeins heimilt að veiða á flugu.
Leirá
Leirá í Leirársveit er nett og aðgengileg veiðiá í um 35 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Í ánni er stunduð vorveiði og er þar þó nokkur sjóbirtingsvon. Tvær stangir eru seldar saman en þeim fylgir lítið veiðihús. Aðeins er veitt á flugu í Leirá og ber að sleppa öllum veiddum fiski.
Leirvogsá
Leirvogsá er í Mosfellssveit og rennur í gegn um Mosfellsbæ. Hún er einkum laxveiðiá en í henni veiðist þó einnig sjóbirtingur. Tvær stangir eru leyfðar á neðri svæðum árinnar í apríl og seljast þær saman í einn dag í senn án veiðihúss. Veiðisvæðið nær frá Helguhyl niður að ós. Eingöngu er veitt á flugu og er skylt er að sleppa öllum fiski.
Litlaá í Kelduhverfi
Litlaá í Kelduhverfi er staðsett rúma 50 km frá Húsavík, ekki langt frá Ásbyrgi. Hún er bergvatnsá sem er sérstök fyrir þær sakir að meðalhiti hennar er hár og vaxtahraði fiska mikill. Í Litluá hefst vorveiðin 1. apríl og er veitt á fimm stangir í senn, auk tveggja stanga í Skjálftavatni. Aðeins er veitt á flugu og skal öllum fiski sleppt. Uppistaða veiðinnar er sjóbirtingur og staðbundinn urriði.
Steinsmýrarvötn
Steinsmýrarvötn eru nærri Kirkjubæjarklaustri og samanstanda af tveimur vötnum auk lækja sem úr þeim renna. Á veiðisvæðinu fást allar gerðir ferskvatnsfiska en uppistaða veiðinnar á vorin er sjóbirtingur og staðbundinn urriði. Í Steinsmýrarvötnum er veitt á fjórar stangir sem leigjast allar út saman án veiðihúss. Heimilt er að nota blandað agn en kvóti miðast við 1 fisk, eftir það skal öllum fiski sleppt.
Skaftá – Ásgarður
Skaftá er staðsett við Kirkjubæjarklaustur í Skaftárhreppi. Veiðisvæðið við Ásgarð er neðan við ármót Tungulækjar og Skaftár en þar er jafnan besta veiðin. Svæðið er tiltölulega stutt og breytir sér mikið á milli ára. Veiði er heimiluð með tveimur flugustöngum frá 1. apríl og er uppistaðan sjóbirtingur sem ber að sleppa. Veiðihús fylgir ekki en margir gistimöguleikar eru á svæðinu.
Tungufljót í Skaftártungu
Tungufljót í Vestur-Skaftafellssýslu er mitt á milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs. Fljótið á upptök sín á hálendinu ofan við Skaftártungu en það sameinast Ása-Eldvatni við veiðistaðinn Syðri-Hólma og renna árnar saman í Kúðafljót. Tungufljót er ein af þekktari sjóbirtingsám landsins og telst til bergvatnsáa. Vorveiði hefst 1. apríl og er uppistaða veiðinnar sjóbirtingur. Fjórar stangir eru leyfðar á svæðinu sem seljast saman ásamt veiðihúsi. Eingöngu er veitt á flugu og skal öllum fiski sleppt.
Við Syðri Hólma þar sem Tungufljót og Ása-Eldvatn mætast.
Barist við stóran sjóbirting í Tungulæk.
Tungulækur
Tungulækur er fremur lítil og nett á sem rennur í Skaftá rétt sunnan Kirkjubæjarklausturs. Vorveiðin getur verið hreint ótrúleg enda er lækurinn þekktur sem eitt gjöfulasta sjóbirtingssvæði landsins. Eingöngu er veitt á flugu og skylt er að sleppa öllum fiski. Leyfðar eru þrjár stangir og fylgir veiðileyfum stórglæsilegt veiðihús með þremur rúmgóðum herbergjum.
Vatnamótin
Vatnamótin eru eins og margar sjóbirtingsár staðsett í nágrenni Kirkjubæjarklausturs, í Vestur-Skaftafellssýslu. Svæðið er fremur víðfeðmt en á því koma saman nokkrar ár sem svo sameinast í Skaftá. Vatnamótin breyta sér reglulega sökum framburðar, en þar er sjóbirtingsvon engu að síður mikil. Fimm stangir eru leigðar saman í tvo daga í senn og er blandað agn leyfilegt.
Varmá
Varmá rennur um Hveragerði en sameinast neðar Sandá og nefnist þá Þorleifslækur uns hann rennur í Ölfusá. Varmá er fremur lítil og nett veiðiá en geymir allar tegundir íslenskra ferskvatnsfiska. Uppistaða veiðinnar á vorin er sjóbirtingur og bleikja, en veiði hefst 1. apríl. Aðeins er veitt á flugu og skal öllum fiski sleppt. Veiðileyfum fylgir ekki gisting en lítið veiðihús er staðsett ofan við þjóðvegsbrú.
Varmá er lítil en geymir mikið af fiski.
Sjóbirtingar geta orðið mjög stórir.
Ytri Rangá – neðri hluti
Ytri Rangá býr að góðum sjóbirtingsstofni þrátt fyrir að vera helst þekkt sem laxveiðiá. Í henni leynast einnig staðbundnir urriðar sem geta náð gríðarlegri stærð. Á vorin eru sex stangir leyfðar í ánni sem seljast stakar eða saman í pakka án veiðihúss. Ársvæðið nær frá Æðarfossum til og með Djúpós. Eingöngu er veitt á flugu og skal öllum fiski sleppt aftur.
Ölfusárós
Um Ölfusárós gengur allur fiskur sem fer upp í Ölfusá, Stóru Laxá, Sogið, Brúará, Hvítá og Tungufljót í Biskupstungum. Meginstraumur árinnar liggur við austurlandið geta veiðimenn átt von á að lax, sjóbleikja, sjóbirtingur og jafnvel sjávarfiskar bíti á. Algengast er þó að veiða sjóbirting á vorin. Blandað agn er leyfilegt í ósnum en heimilt er að veiða á 10 stangir.
Staðbundin bleikja og urriði
Yfirlitskort af silungsveiðiám sem opna í apríl. (Heimild: Kortavefsjá)
Brunná í Öxarfirði
Gilsbakkaá, Tunguá og Smjörhólsá mynda saman veiðisvæði Brunnár í Öxarfirði. Svæðið er skammt frá Ásbyrgi, í um 60 km. fjarlægð frá Húsavík. Tvær stangir eru leyfðar á svæðinu sem seldar eru saman ásamt veiðihúsi. Veiði hefst 1. apríl og geta veiðimenn átt von á sjóbirtingi, staðbundnum urriða og bleikju. Eingöngu er veitt á flugu og skal öllum fiski sleppt aftur.
Brúará
Brúará er staðsett á suðurlandi, skammt frá Skálholti, rétt austan Laugarvatns. Hún er önnur vatnsmesta bergvatnsá landsins á eftir Soginu. Áin er þekkt fyrir góða silungsveiði en bleikja veiðist í töluverðu magni á vorin. Veiðisvæðið skiptist í austur og vesturbakka, fyrir landi Sels, Spóastaða og Skálholts. Blandað agn er leyfilegt í Brúará og er unnt að kaupa stakar dagstangir án veiðihúss.
Brúará er þekkt fyrir góðan bleikjustofn.
Eyvindarlækur í Aðaldal
Eyvindarlækur rennur í Laxá í Aðaldal á milli Syðra Fjalls og Múlatorfu. Um er að ræða tveggja stanga veiðisvæði án veiðihúss þar sem uppistaða veiðinnar er staðbundinn urriði. Veiði hefst í læknum 1. apríl og er eingöngu veitt á flugu. Öllum fiski ber að sleppa aftur.
Galtalækur
Galtalækur á upptök sín skammt frá Heklu og rennur í Ytri Rangá. Í Galtalæk veiðast jafnan mjög stórir urriðar en svæðið er afar viðkvæmt og krefst mikillar aðgátar veiðimanna. Lækurinn er fremur lítill og því betra að vera með tiltölulega nettar græjur. Tvær stangir seljast saman án veiðihúss. Eingöngu er veitt á flugu og skal öllum fiski sleppt.
Geitafellsá í Reykjahverfi
Geitafellsá er hluti af vatnakerfi Laxár í Aðaldal en áin rennur úr Kringluvatni í Langavatn. Veitt er á tvær stangir í ánni en þar getur verið góð urriða- og bleikjuveiði. Eingöngu er veitt á flugu og skal öllum urriða sleppt, en heimilt að taka bleikju í hófi. Ekkert veiðihús fylgir veiðileyfum en hægt er að fá gistingu á svæðinu.
Hólaá
Hólaá er fremur nett silungsveiðiá sem rennur úr Laugarvatni í Apavatn. Veiði er heimiluð í ánni frá 1. apríl og veiðist bæði bleikja og urriði. Blandað agn er leyfilegt á svæðinu sem skiptist í nokkur svæði.
Laxá í Aðaldal
Laxá í Aðaldal er einkum þekkt fyrir stóra laxa en hún fóstrar einnig gríðarlegt magn af silungi. Á vatnasvæðinu, sem er býsna stórt, veiðist einkum staðbundinn urriði sem getur orðið rígvænn. Nokkur svæði árinnar bjóða upp á silungsveiðileyfi:
Árbót
Árbót í Laxá í Aðaldal er fornfrægt stórlaxasvæði, en eins og annarsstaðar í ánni er þar góð silungsveiði. Um að ræða austurbakka Laxár, milli Nes- og Laxamýrarsvæðanna, sem leigt er með eða án veiðihúss. Tvær stangir eru seldar saman og er aðeins veitt á flugu.
Syðra Fjall
Vesturbakki neðsta hluta urriðasvæðanna neðan virkjunar í Laxá í Aðaldal kallast Syðra Fjall. Seldar eru tvær stangir saman í pakka og er eingöngu veitt á flugu. Taka má tvo urriða á hverja hálfa dagstöng. Veiðihús er ekki á svæðinu en veiðimönnum er bent á gistingu í nærliggjandi gistihúsum.
Presthvammur
Austurbakki efsta hluta urriðasvæðanna neðan virkjunar í Laxá í Aðaldal er nefndur Presthvammur. Þar eru seldar tvær stangir saman í pakka og er aðeins veitt á flugu. Aðstaða í litlum kofa er innifalin í veiðileyfum, en þar eru áhöld þess að hita og neyta matar. Í honum eru tvö rúm og hægt er að tjalda eða setja upp tjaldvagn innan girðingar við veiðikofann.
Lónsá
Lónsá er skammt frá Þórshöfn á Langanesi og rennur í sjó stutt frá bænum Ytra Lóni. Lónsá er nett silungsveiðiá, helst þekkt fyrir góða sjóbleikjuveiði. Veiði á sjóbirtingi og staðbundnum urriða hefur þó aukist mikið síðustu ár. Á fyrri helmingi tímabilsins í apríl og maí er veiðivon mest á ósasvæðinu og í Sauðaneslóni ásamt staðbundinum urriða ofar í ánni. Leigðar eru út fjórar stangirog er eingöngu veitt á flugu.
Minnivallalækur
Minnivallalækur er staðsettur í Landssveit í rúmlega 100 km. fjarlægð frá Reykjavík, skammt frá Heklu. Lækurinn er þekktur fyrir stóra staðbundna urriða og tæknilega krefjandi veiði. Veitt er með fjórum stöngum á svæðinu sem seljast saman ásamt veiðihúsi í tvo til þrjá daga í senn. Aðeins er heimilt að veiða á flugu og skal öllum fiski sleppt.
Veiðimaður berst við urriða í Minnivallalæk.
Mýrarkvísl
Mýrarkvísl er hliðará Laxár í Aðaldal sem rennur í Skjálfandaflóa skammt frá Húsavík. Áin er þekkt sem laxveiðiá en í henni veiðist einnig mikið af staðbundnum urriða. Mýrarkvísl skiptist í fjögur veiðisvæði en ein stöng er á hverju svæði. Hægt er að kaupa stakar stangir í einn eða fleiri daga með eða án veiðihúss. Eingöngu er veitt á flugu og er veiðimönnum frjálst að taka urriða í hófi.
Reykjadalsá
Reykjadalsá er eina af mörgum þverám Laxár í Aðaldal og rennur hún niður Reykjadal. Áin er tiltölulega nett og því upplagt að reyna andstreymisveiði með púpum og þurrflugum. Leyfðar eru 6-8 stangir í ánni sem er eingöngu veidd á flugu. Stangir eru seldar stakar eða saman ásamt veiðihúsi. Heimilt er að hirða urriða í hófi.
Sog
Sogið fellur úr Þingvallavatni í Hvítá og er það vatnsmesta bergvatnsá landsins. Sogið fóstrar mikið magn af staðbundinni bleikju, en einnig nokkuð af sjóbirtingi. Bleikjan getur náð gríðarlegri stærð og ekki er óalgengt að setja í fiska á bilinu 4-8 pund. Áin skiptist í nokkur svæði en vorveiði hefst á nokkrum þeirra 1. apríl.
Ásgarður
Veiðisvæði Ásgarðs nær frá Álftavatni að veiðimörkum Ásgarðs og Syðri Brúar. Þar eru þrjár dagstangir seldar stakar án veiðihúss. Þó er hægt að leigja veiðihúsið við Ásgarð séu veiðileyfi keypt í tvo eða fleiri daga. Eingöngu er leyfð fluguveiði og skal öllum fiski sleppt.
Alviðra
Svæðið markast af vesturbakka Sogs fyrir landi Alviðru og austurbakka neðan brúar við Þrastalund. Seldar eru tvær stangir saman í pakka, en heimilt er að veiða á þriðju stöngina. Aðeins er heimilt að nota flugu og skal öllum fiski sleppt aftur.
Þrastalundur
Veiðisvæðið við Þrastalund er staðsett ofan við þjóðvegbrúna yfir Sogið og nær upp að Álftavatni að austan. Tvær stangir eru leyfðar á svæðinu og eru þær seldar saman í pakka. Eingöngu er veitt á flugu og skal öllum fiski sleppt líkt og á öðrum svæðum. Ekkert veiðihús fylgir en svæðið er í um 50 km. fjarlægð frá Reykjavík.
Ytri Rangá – efri hluti
Þetta svæði Ytri-Rangár nær frá Árbæjarfossi upp að rótum Heklu. Þar er vorveiði heimiluð í apríl en uppistaða veiðinnar er vænn staðbundinn urriði. Aðeins er veitt á flugu og ber veiðimönnum að sleppa öllum fiski aftur. Svæðið er afar víðfeðmt og rúmar því auðveldlega þær 6 stangir sem leyfðar eru. Stangir eru seldar stakar í einn eða fleiri daga og er verði stillt í hóf.
Þingvallavatn
Þingvallavatn er annað tveggja stærstu stöðuvatna á Íslandi. Þar eru fjölmörg gjöful veiðisvæði og er veiði í vatninu afar eftirsótt. Í vorveiðinni eru veiðimenn einkum á eftir hinum víðfræga Þingvallaurriða sem getur orðið gríðarstór. Aðeins er heimilt að veiða á flugu og skal öllum fiski sleppt aftur.
Veiðimaður þreytir urriða í Þorsteinsvík.
ION-svæðið
Þorsteinsvík og Ölfusvatnsárós tilheyra hinu svokallaða ION-svæði á Þingvöllum. Þau þykja með þeim allra bestu í Þingvallavatni enda heldur þar til mikið af fiski. Í Þorsteinsvík eru heitar uppsprettur sem fiskurinn sækir í og er þar veitt af nokkuð langri sandströnd. Nokkru austar er Ölfusvatnsárós þar sem áin mætir Þingvallavatni. Þar getur legið ótrúlegt magn af urriða, sem þó getur verið sýnd veiði en ekki gefin. Tvær stangir eru leyfðar á hvoru veiðisvæði en ION-svæðið er selt sem ein heild frá 20. apríl.
Fish Partner
Veiðifélagið Fish Partner hefur á sínum snærum nokkur af gjöfulli veiðisvæðum við Þingvallavatn. Stakar stangir eru fáanlegar frá morgni til kvölds en sum svæðanna opna nú 1. apríl.
Þingvallaurriði sem féll fyrir Black Gnat þurrflugu.
Vatnaveiði - Veiðikortið
Baulárvallavatn er á Snæfellsnesi
Baulárvallavatn er í um 160 km. frá Reykjavík, um 15 km. í suður frá Grundarfirði og Stykkishólmi, á leið frá Vegamótum í norður. Veiði er heimiluð frá 1. apríl, eða þegar ísa leysir. Urriðaveiði er nokkuð góð í vatninu en meðalþyngd fiska er 2-3 pund. Ekki er óalgengt að þar veiðist stærri fiskar á bilinu 5-6 pund.
Gíslholtsvatn
Gíslholtsvatn er í um 85 km fjarlægð frá Reykjavík. Á svæðinu eru tvö vötn, þ.e. Eystra- og Vestra Gíslholtsvatn. Handhafar Veiðikortsins mega veiða í eystra vatninu að vestanverðu, þ.e. í landi Gíslholts, en ekki því vestra. Þar veiðist bæði bleikja og urriði. Bleikjan er nokkuð smá en aftur á móti getur urriðinn orðið vel vænn.
Hlíðarvatn í Hnappadal
Hlíðarvatn í Hnappadal er bæði gjöfult og vinsælt veiðivatn. Sérkenni þess eru að vatnshæð breytist töluvert yfir sumarið og veiðistaðir í hrauninu breytast sömuleiðis milli mánaða. Í Hlíðavatni veiðist bæði bleikja og urriði, jafnt stórir sem litlir fiskar.
Hraunsfjarðarvatn
Hraunsfjarðarvatn er á Snæfellsnesi rétt við Baulárvallavatn í um 200 km. frá Reykjavík, um 15 km. í suður frá bæði Grundarfirði og Stykkishólmi, á leið frá Vegamótum í norður. Jafnan er veiði góð í vatninu. Einungis veiðist þar urriði sem gjarnan er vænn. Meðalþyngd fiska er 2-3 pund, en algengt er að þar veiðist stærri fiskar, 5-6 pund.
Hraunsfjörður
Á norðanverðu Snæfellsnesi, mitt á milli Stykkishólms og Grundarfjarðar, er Hraunsfjörður. Þetta veiðisvæði er afar skemmtilegt en um er að ræða lón fyrir innan stíflu við Hraunsfjörð. Vatnasvæðið er nokkuð víðáttumikið og þar heldur til mikið af fiski, mest megnis bleikja. Veiði er heimil frá 1. apríl.
Kleifarvatn
Kleifarvatn er eitt af stærstu vötnum landsins, um 8 km2 að stærð og í 136 metra hæð yfir sjávarmáli. Það er staðsett á Reykjanesskaga á milli Sveifluhálsar og Vatnshlíðar. Vatnið er þekkt fyrir sína stóru fiska og hafa mælingar sýnt að mikið er af fiski í vatninu. Í Kleifarvatni veiðist bæði urriði og bleikja en veiðitímabilið hefst 15. apríl.
Meðalfellsvatn
Í næsta nágrenni við höfuðborgina er Meðalfellsvatn í Hvalfirði. Það er um 2 km2 að stærð og um 18 metra djúpt þar sem það er dýpst. Í vatnið renna tvær ár, Sandsá og Flekkudalsá, en úr því fellur Bugða sem rennur í Laxá í Kjós. Uppistaða veiðinnar er smá bleikja en þó veiðist töluvert af urriða, einkum á vorin. Veiði í Meðalfellsvatni hefst hefst 19. apríl.
Sauðlauksdalsvatn
Sauðlauksdalsvatn er á Vestfjörðum, í nágrenni Patreksfjarðar. Þar veiðist bleikja, bæði staðbundin og sjógengin. Urriða er einnig að finna í vatninu sem náð getur mikilli þyngd, en bleikjan er almennt á bilinu 1-1,5 pund að þyngd. Veiði er heimil í Sauðlauksdalsvatni eftir að ísa leysir.
Syðridalsvatn
Syðridalsvatn er í Bolungavík við Ísafjarðardjúp. Heimilt er að veiða í öllu vatninu en einnig í og nærliggjandi ám, Gilsá og Tröllá. Í vatninu veiðist staðbundin bleikja, sjóbleikja og sjóbirtingur. Veiði er heimil frá 1.apríl.
Urriðavatn
Urriðavatn er í næsta nágrenni Egilsstaða. Veiði er heimiluð í öllu vatninu árið um kring. Helstu staðirnir eru við ósa Hafralækjar og Urriðavatnslækjar, en einnig við hitaveitutanka sem eru á svæðinu. Í urriðavatni er eingöngu bleikju að finna, eins einkennilega og það hljómar. Uppistaðan er smábleikja, þó slæðast með stærri fiskar.
Þingvallavatn
Þingvallavatn er eitt gjöfulasta og frjósamasta vatn landsins. Í því lifa fjórar tegundir af bleikju í samneyti við hinn víðfræga urriðastofn. Algeng stærð á bleikju er frá hálfu pundi upp í fjögur pund. Bleikjutegundirnar eru: sílableikja, kuðungableikja, murta og gjámurta. Í upphafi veiðitímabilsins eru menn yfirleitt á höttunum eftir urriðanum. Á tímabilinu 20. apríl og fram til 31. maí má einungis veiða á flugu og öllum urriða skal sleppt.
Vestmannsvatn
Þar sem Reykjadalur og Aðaldalur mætast á milli Mývatns og Húsavíkur er Vestmannsvatn staðsett. Vatnið er, líkt og Langavatn, hluti af vatnakerfi Laxár í Aðaldal. Úr vatninu rennur Eyvindarlækur niður í Laxá og þaðan til sjávar. Bæði urriði og bleikja heldur til í vatninu sem veiða má á blandað agn.
Vífilsstaðavatn
Vífilsstaðavatn er eitt af fáum veiðivötnum á höfuðborgarsvæðinu, staðsett í Garðabæ, austan við Vífilsstaði. Þar veiðist einkum urriði og bleikja, mest af smábleikju. Þó eru dæmi dæmi þess að stærri fiskar veiðist, þá jafnan 2-3 pund. Veiðitímabilið hefst 1. apríl.
Þveit
Þveit er á suðausturlandi, staðsett í Nesjahreppi í Austur-Skaftafellssýslu. Vatnið er í um 450 km. fjarlægð frá Reykjavík og um 10 km. frá Höfn í Hornafirði. Þar veiðist bleikja, urriði, sjóbirtingur og sjóbleikja en veiðitímabil hefst 1. apríl.
Vatnaveiði - utan Veiðikortsins
Eyrarvatn
Eyrarvatn er í Svínadal ofan við Hvalfjörð og er hluti af vatnakerfi Laxár í Leirársveit. Það er í um 60 km. fjarlægð frá Reykjavík og er aðgengilegt fyrir alla aldurshópa. Heimilt er að nota blandað agn en uppistaða veiðinnar er staðbundinn bleikja og urriði. Veiði er heimiluð í vatninu frá 1. apríl.
Geldingatjörn
Geldingatjörn er lítið stöðuvatn sem staðsett er rétt utan höfuðborgarsvæðisins. Leyfðar eru 8 stangir í vatninu en veiði er heimiluð með blönduðu agni. Þar veiðist urriði sem er á bilinu 1-2 pund.
Kringluvatn
Í Reykjahverfi á milli Mývatns og Húsavíkur er Langavatn. Það er hluti af hinu víðfeðma vatnakerfi Laxár í Aðaldal og finnst þar bæði urriði og bleikja. Úr Langavatni rennur Mýrarkvísl niður í Laxá og þaðan til sjávar. Allt löglegt agn er leyft og hirða má fisk í hófi.
Langavatn
Kringluvatn er hluti af vatnakerfi Laxár í Aðaldal staðsett í Reykjahverfi á milli Mývatns og Húsavíkur. Úr vatninu rennur Kringlugerðisá sem verður að Geitafellsá. Veiði er heimiluð með öllu löglegu agni, en þar veiðist bæði urriði og bleikja.
Þórisstaðavatn í Svínadal
Þórisstaðavatn er við Þórisstaði í Svínadal ofan við Hvalfjörð. Vatnið er í um 60 km. fjarlægð frá Reykjavík og er hluti af vatnakerfi Laxár í Leirársveit. Uppistaða veiðinnar er staðbundinn urriði og bleikja. Veiði hefst í vatninu 1. apríl.
Vantar þig aðstoð með val á veiðileyfum?
Starfsfólk Veiðiflugna hefur reynslu af veiði í flestum ofantalinna vatnasvæða. Ef þig vantar aðstoð eða upplýsingar þá ekki hika við að hafa samband við okkur í gengum Facebook, Instagram, í síma 527 1060 eða á netfanginu [email protected].
Athugið að þessi listi er ekki tæmandi. Ábendingar um önnur veiðisvæði eða aðrar upplýsingar má senda á [email protected].