Transformer hnýtingaþvingan frá Stonfo er í reynd þrjár þvingur í einni:
- Venjuleg full rotary þvinga til allra venjulegra hnýtinga
- Þvinga fyrir túpuflugur
- Þvinga fyrir straumflugur.
Með auðveldu handtaki er skipt um haus á þvingunni og henni breytt eftir óskum. Breyta má stífleika í snúningi þvingunnar frá því að vera mjúkur í stífan. Einnig má festa þvinguna allan hringinn, stilla hæð þvingunnar og breyta henni þannig að henti betur örvhentum hnýturum.
Nokkrir fylgihlutir koma með þvingunni. Má þar nefna statíf fyrir keflishölduna, efnishöldu, „parachute festingu“, og greinargóðan bækling um notkun.
Reiða Öndin - Sarpur
Loon UV Fluorescing Clear Finish - Lakk
Veiðikortið 2026
Loon Ergo Hair 4,5“ Hnýtingaskæri
Loop 7X 10' #6
Costa Paunch Gold Veiðigleraugu 580G
Guideline Elevation Einhendupakki 9‘ #5
GL Áhaldaspóla
Tubefly Fluguhnýtingasett 



