Sealskinz 100% Vatnsheldir Hnjásokkar – Cold Weather

Uppfærð útgáfa af vatnsheldum sokkum frá Sealskinz sem tekst enn betur á við kulda og rigningu. Rakir og kaldir fætur valda notandanum óþægindum við iðju sína. Doða í tám, blöðrur og frostbit má forðast með notkun þessara vatnsheldu sokka. Þá má nota í fjölbreyttu hitastigi, í rigningu og snjó eða innanundir vöðlur og í útiskóm.

11.495kr.

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Fullkomnir vatnsheldir hnjásokkar

Uppfærð útgáfa af vatnsheldum sokkum frá Sealskinz sem tekst enn betur á við kulda og rigningu. Rakir og kaldir fætur valda notandanum óþægindum við iðju sína. Doða í tám, blöðrur og frostbit má forðast með notkun þessara vatnsheldu sokka. Þá má nota í fjölbreyttu hitastigi, í rigningu og snjó eða innanundir vöðlur og í útiskóm. Sokkarnir ná upp að hnjám sem oft getur komið sér vel, s.s. þegar gengið er í miklum snjó, við hjólreiðar og í aðrar krefjandi aðstæður.

Hannaðir til að halda fótunum þurrum og hlýjum

Sealskinz notar einstaka þriggja laga uppbyggingu í sokkana með 100% vatnsheldri filmu að utanverðu, en úrvals merino-ull að innanverðu. Ullin veitir mikla hlýju og dregur úr svitamyndun. Ytra byrði sokkanna er úr nælonefni með fjögurra þátta teygju sem tryggir aukin þægindi og meiri hreyfanleika.

Auka lag fyrir meiri hlýju

Sokkarnir eru hannaðir með aukna hlýju í huga og því gerðir úr fínustu merino-ull. Að auki hefur auka lagi verið komið fyrir í sokkunum til að gera þá enn hlýrri.

Tilvaldir í hverskonar útivist

Vatnsheldir sokkar eru heppilegir í aðstæðum þar sem hætta er á að fæturnir blotni. Þeir henta því í gönguferðir, hjólreiðar, fjallgöngu, veiðina eða útivinnuna.

Gerðir fyrir þægindi

Sokkarnir eru hannaðir með hnökralausri aðferð til aukinna þæginda. Tásaumar eru flatir og aukinn stuðningur hafður í hæl og við ökkla. Þannig verður upplifun notandans betri með þægindi í fyrirrúmi.

Handsaumaðir og prófaðir

Sérhvert sokkur er handsaumaður í Bretlandi og er vatnsheldni þeirra prófuð áður en þeir fara á markað.