Scott GS 9′ #4

> Frábær silungsveiðistöng frá Scott
> Hentar fyrir smáar flugur og granna tauma
> Mjög létt og afar nákvæm
> Meðalhröð en nokkuð aflmikil

124.900kr.

Vara uppseld

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Scott GS stöngin er framhald af G2 stönginni en sú stöng hefur verið flaggskip Scott sem silungastöng allt frá árinu 1976, þó með nokkrum breytingum.

GS stöngin vann til verðlauna á IFTD sýningunni í Orlando í Flórída í júlí 2017 og var þar valin besta nýja stöngin til veiða í ferskvatni. GS stangirnar frá Scott hafa árum saman verið einstakar stangir fyrir þá silungsveiðimenn, sem vilja meðalhraða stöng, sem fer vel með grannan taum, jafnvel 7X. Nú er þessi gerð orðin enn betri en Scott hefur náð að gera stöngina sveigjanlegri, sterkari og 20% léttari. Stöngin er í fjórum hlutum.

Stönginni fylgir stangarpoki og vandaður álhólkur, á henni er lífstíðarábyrgð eins og öllum Scott flugustöngum.