SALAR S4 9′ #6/7

> Létt stöng með mikið afl
> Hentar í sjóbirtings- og laxveiði
> Er í 5 pörtum – frábær í ferðalagið
> Línuþyngd: 22–26 g – vegur aðeins 95 g

134.900kr.

Á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

SALAR S4 9′ #6/7 Einhenda

SALAR S4 9′ #6/7 er flott einhenda frá Mikael Frödin, hönnuð fyrir þá sem vilja léttleika, styrk og nákvæmni í einu verkfæri. Þetta er stöngin sem þú tekur með í sjóbirtingsferðina, í urriðann eða í laxveiðiárnar – hún hentar ótrúlega breiðu veiðisviði.

Stöngin er smíðuð úr hágæða kolefni sem hefur mikinn kraft. Það skilar sér í lengri köstum, jafnvel í mótvindi – en þó með nægum fínleika fyrir nákvæma framsetninga í rólegu vatni. Full-flex eiginleikinn gerir það að verkum að þú finnur hverja hreyfingu niður í handfang – og hefur betri stjórn á bæði flugu og fiski.

Stöngin er í 5-hlutum og pakkast í 64 cm hólk – tilvalin fyrir veiðimenn sem ferðast og þá sem vilja allt í einum nettum pakka. Stöngin sjálf er í rauðum lit með samlitum vafningum og klassískum áherslum. Á henni er vandað korkhandfang, bronslitað hjólasæti og áletruðu málbandi, kjörið fyrir veiða og sleppa.

Helstu eiginleikar:

• Hentar í mjög fjölbreytta veiði
• Létt og fínstillt – vegur aðeins 95 g
• Er í 5 pörtum – auðveld í ferðalög
• Full-flex með miklum krafti í skafti
• Brons hjólasæti og hágæða korkur
• Málband áletrað á stöngina
• Útsaumaður, þríhyrndur Cordura-hólkur fylgir

Tæknilýsing:

• Lengd: 9′ (2,74 m)
• Línuþyngd: #6/7
• Kastþyngd: 22–26 g
• Þyngd stangar: 95 g
• Flutningslengd: 64 cm