SALAR Three 8/10

> Frábært fluguhjól í laxveiðina
> Hentar tvíhendum 12-14 fet að lengd
> Einstaklega áreiðanlegur bremsubúnaður
> Vegur 315 gr.

128.900kr.

Á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

SALAR Burgundy eru ný fluguhjól frá Mikael Frödin þar sem klassískar hefðir mæta nýstárlegri verkfræði. SALAR Three hjólið er sannarlega traustur félagi á veiðislóð. Það er hannað fyrir meðalstórar tvíhendur og myndar frábært jafnvægi með stöngum sem eru 12 til 14 fet að lengd. Þetta hjól mun endast lengi og reynast áreiðanlegt áratug eftir áratug.

SALAR hjólin eru úthugsuð og er hvert smáatriði tekið með í reikninginn: allt frá innsigluðu diskabremsukerfi, saltvatnsheldu áli og dropamynduðum bremsuhnappi til glæsilegra vínrauðra hliðarplatna. Þessi útfærsla SALAR hjólanna er önnur kynslóð sinnar tegundar. Reynsla þeirra hefur verið afar góð og hafa þau getið sér gott orð fyrir fallegt útlit og mikinn áreiðanleika. Þau eru sterklega byggð og þola því mikla notkun og alvöru áreynslu. SALAR fluguhjólin eru framleidd í Þýskalandi í samvinnu við Ralf Vosseler og er hvert og eitt þeirra númerað.