Rafrænt gjafabréf Veiðiflugna
Rafrænt gjafabréf Veiðiflugna er einföld og örugg leið til að gleðja veiðimanninn. Þú velur upphæðina og viðtakandinn velur þær vörur sem henta – frá flugum og áhöldum til flugustanga og vöðlujakka. Gjafabréfið er sent rafrænt á netfang viðtakanda eða til þín ef þú vilt prenta það út og afhenda persónulega.
Svona virkar gjafabréfið
– Veldu upphæð og sláðu inn nafn viðtakanda
– Settu inn netfang viðtakanda eða þitt eigið
– Skrifaðu kveðju eða skilaboð eftir þörfum
– Veldu afhendingardag eða sendu strax
– Veldu útlit gjafabréfsins
– Forskoðaðu bréfið og staðfestu pöntun
Við sendum síðan rafrænt gjafabréf með kóða sem virkar strax við greiðslu í netverslun Veiðiflugna.
Hvernig er gjafabréfið notað?
Viðtakandi slær inn gjafabréfskóðann í körfuna þegar gengið er frá pöntun. Upphæð gjafabréfsins dregst sjálfkrafa frá heildarverðinu. Ef pöntunin er lægri en upphæð gjafabréfsins geymast eftirstöðvar upphæðarinnar og má nota þær síðar.
Skilmálar
– Gildir sem greiðslumiðill í netverslun Veiðiflugna
– Hægt að nota í einni eða fleiri pöntunum þar til gild upphæð er uppurin
– Gildistími er tvö ár frá útgáfudegi
– Sent rafrænt á netfang sem skráð er í pöntun
Nánari upplýsingar má finna á veidiflugur.is/gjafabref
Viltu frekar hefðbundið gjafabréf? Það má kaupa HÉR.
Loop Q Einhendupakki 9‘ #6
McLean Salmon Weigh Net XXL - Laxaháfur með Innbyggðri Vigt 

