Patagonia Swiftcurrent Zip Vöðlupakki II er úrvalspakki fyrir konur sem vilja sterkan, þægilegan og vel útfærðan búnað fyrir langa veiðidaga. Swiftcurrent Expedition Zip Front vöðlurnar frá Patagonia í kvennasniði og sameina mikla endingu, góða vatnsheldni og vandaða hönnun sem nýtist vel í krefjandi aðstæðum.
Vöðlurnar eru úr fjögurra laga H2No™ Performance Standard efni úr 100% endurunnu pólýester. Efri hlutinn er léttari og andar vel, en neðri hlutinn er úr þéttara og slitsterkara efni þar sem álagið er mest. Vatnsheld öndunarfilma og DWR-áferð án PFC-efna verja gegn bleytu og óhreinindum án þess að gera vöðlurnar stífar eða þungar.
Sniðið er mótað fyrir konur og hefur verið endurbætt til að auka þægindi og hreyfanleika. Formsaumaðir fætur, aðeins rýmri neðri hluti og anatomískir sokkar fyrir vinstri og hægri fót gera vöðlurnar þægilegar yfir langan dag, hvort sem mikið er gengið, vaðið eða staðið í köldu vatni. Fjarlægjanlegir hnépúðar koma sér vel þegar kropið er við bakka og slitvörn við ökkla eykur endingu.
Vatnsheldur YKK® rennilás að framan gerir vöðlurnar sérlega þægilegar í notkun. Stillanleg axlabönd með smellum gera auðvelt að færa efri hlutann niður og nota þær sem mittisvöðlur þegar aðstæður leyfa. Secure Stretch™ vöðlubelti og beltislykkjur að framan og aftan sjá til þess að vöðlurnar sitji vel.
Að innan er vatnsheldur vasi fyrir síma, lykla eða önnur verðmæti, auk tveggja opinna teygjanlegra vasa fyrir smáhluti. Að framan er stór brjóstvasi með láréttum vatnsfráhrindandi rennilás og tveir fóðraðir vasar til að verma hendur. Festilykkjur fyrir veiðitól og þurrkunarlykkja á baki bæta við notagildið. Vöðlurnar eru framleiddar í Fair Trade Certified™ verksmiðju.
Í pakkanum er hægt að velja á milli Devils Canyon og Darkhorse vöðluskóa frá Korkers. Devils Canyon eru léttir og þægilegir skór með góðum ökklastuðningi, styrktri tá og hæl og frárennslisrásum sem hleypa vatni fljótt úr skónum.
Darkhorse W’s eru endurhannaðir til að henta betur fótum kvenna og veita góða festu, stuðning og þægindi í lengri notkun. Skórnir eru með M4 BOA® vírakerfi og útskiptanlegum OmniTrax-sólum þar sem fylgja bæði gúmmí- og filtbotnar. Negldir botnar eru einnig fáanlegir aukalega fyrir aðstæður þar sem þörf er á enn meira gripi.
Finisher tool - fyrir endahnútinn
Costa Grand Catalina Veiðigleraugu 580G
Guideline Aura Bronze 3/4
Guideline NT11 Fast Full Flex 10' #7
Loon Ergo All Purpose 4“ Hnýtingaskæri
Nám REN 9' #5
Rapala Laxaháfur L
Loop Dry Tactical 15L Bakpoki
Loop ZX 9' #7
Korkers Xtra-Bite Carbide Skrúfur í Vöðluskó
Loop Q 7/9
Loop Z1 Tvíhendupakki 12,4' #7
Stonfo Synt Oval Tape #2
Guideline Neck Gaiter Höfuðhlíf - Dark Mustard 















































