Einstaklega vandaður 29 lítra bakpoki frá Patagonia sem er algjörlega vatnsheldur. Hann er hannaður þannig að hann sé sem léttastur, án þess að það komi niður á gæðunum. Bak og axlarólar eru vatnsfælnar, taka hvorki við né geyma vatn. Á bakpokanum er slíður fyrir veiðiháf, sem nýtist bæði fyrir rétthenta sem örvhenta veiðimenn. Að innan er vatnsheldur vasi sem aðskilur smáhluti frá innihaldi aðalhólfsins. Þann vasa er hægt er að færa og koma fyrir að utanverðu þegar svo ber undir.
Bakpokann er unnt að nota með öðrum vörum frá Patagonia, s.s. Convertible vestinu eða Stealth Work Station vöðlupokanum. Þannig má auka geymslupláss og auðvelda aðgengi að nauðsynlegum hlutum við veiðar. Bakpokinn er framleiddur í Fair Trade vottaðri verksmiðju, sem þýðir að fólkið sem framleiddi hann fékk mannsæmandi (e. premium) laun fyrir.