Loop Q Switch-pakki 11′ #7

> Frábær switch-stöng í laxinn
> Meðalhröð með frábæra kasteiginleika
> Stönginni fylgir Loop Q fluguhjól og SDS-línukerfi
> Vegur 154 gr.

125.900kr.

Vinsamlega veldu inndrátt fluguhjólsins:

Insufficient stock

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Vandaður fluguveiðipakki sem samanstendur af Loop Q switch-stöng, Loop Q fluguveiðihjól, undirlínu, SDS-rennilínu og Loop SDS Switch-línkerfi eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.

Q er nýjustu switch-stangirnar frá Loop en markmiðið með hönnun þeirra var að gera góða stöng fyrir breiðan hóp veiðimanna á sem lægstu verði. Stangirnar eru hannaðar fyrir ólíka kaststíla og ,,fyrirgefa“ mistök í kastsveiflunni nokkuð vel. Stöngin er afar notendavæn og hentar því byrjendum jafnt sem þaulreyndum veiðimönnum. Stangirnar koma með grárri mattri áferð, handfangið er úr fyrsta flokks korki og lykkjur úr títaníum.

Á síðustu árum hefur Loop þróað frábært fluguveiðihjól sem sameinar einkum tvennt, þ.e. gæði og hagstætt verð. Loop Q hjólið er framleitt úr renndu- og steyptu áli, það er með mattri grárri áferð og skartar einkennismerki Loop, L-inu fyrir miðju. Á hinni hlið hjólsins má lesa út bókstafinn Q, enda ber hjólið nafnið Loop Q. Bremsubúnaðurinn er úthugsaður, ákaflega þýður og er auk þess algjörlega lokaður. Spólan er V-laga til þess að gera notkun hjólsins liprari en ekki síður til að draga úr línuminni

Á hjólinu er undirlína, SDS-rennilína og Loop SDS Switch-línukerfi. Línukerfið samanstendur af þremur skothausum þ.e. flot, sökkhraða 3 og sökkhraða 5. Línan hentar ákaflega vel íslenskum aðstæðum enda samræmist lengd og þyngd hennar vel stærð innlendra veiðisvæða. Línan samanstendur af  grunnlínu (e. body), þ.e flotlínu sem er sex metrar að lengd auk þriggja úrskiptanlegra enda (e. tip) sem eru þrír metrar að lengd. Samanlögð lengd skothaussins er því 9 metrar, sem er að heita má fullkomin lengd fyrir íslensk ársvæði.

Skothausakerfið er hannað með lítt teygjanlegan kjarna sem tryggir betri hleðslu stangarinnar og gerir orkuflutninginn nær fyrirhafnarlausann. Með kerfinu má kasta flugu á lengra færi með mikilli nákvæmni en lengd haussins gerir stuttu köstin ekki síður nákvæm. SDS Switch er frábært alhliða skothausakerfi sem nýtist í allar aðstæður og þar með allar flugugerðir, þungar sem léttar. Lykkjur eru á öllum endum kerfisins sem eru afar sterkar, grannar og fyrirferðarlitlar.

Loop Q Switch er virkilega flottur fluguveiðipakki á hagstæðu verði.