Loop Q 10,6‘ #3

> Stórskemmtileg silungsveiðistöng
> Hönnuð í andstreymisveiði með púpum
> Meðalhröð en með mikinn karakter
> Vegur 109 gr.

59.900kr. 29.950kr.

Vara uppseld

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Q er nýjasta stöngin frá Loop sem sameinar gæði og gott verð. Markmiðið með hönnun þeirra var að gera góða stöng fyrir breiðan hóp veiðimanna á sem lægstu verði. Stangirnar eru hannaðar fyrir ólíka kaststíla og ,,fyrirgefa’’ mistök í kastsveiflunni nokkuð vel.

Loop Q  er afar notendavæn og hentar því byrjendum jafnt sem þaulreyndum veiðimönnum. Stangirnar koma með grárri mattri áferð, handfangið er úr fyrsta flokks korki og lykkjur úr títaníum. Hver stöng hefur sinn karakter enda hver línuþyngd með sína sveigju og hraða.

Stöngin er í fjórum hlutum. Henni fylgir stangarpoki og stangarhólkur.
Loop Q er án vafa með betri stangarkaupum í dag.