Laxá – Flotlína
Laxá er hágæða flotlína sem hönnuð er sérstaklega fyrir stærri laxveiðiár á borð við Laxá í Aðaldal, Sogið og Jöklu. Hún hentar jafnt byrjendum sem reyndum veiðimönnum og nýtist við fjölbreyttar veðuraðstæður. Línan situr hátt á vatnsyfirborðinu, sem dregur úr viðnámi og gerir köstin auðveldari og árangursríkari. Rennilínan er mismunandi milli línuþyngda, enda mikilvægt að hún sé hæfilega þykk svo línan renni auðveldlega í gegnum lykkjur stangarinnar. Mjúk kápa gerir línuna sérstaklega auðvelda í meðhöndlun og þægilega að strippa.
Þó hægt sé að draga skothausinn inn fyrir lykkjur, nýtur línan sín best þegar hausinn er allur fyrir utan stangartoppinn. Laxá fer vel með löngum frammjókkandi taumum og leggst mjúklega á vatnsflötinn. Hún ber bæði léttar og þungar flugur án fyrirhafnar. Línan er hrein flotlína og ekki mælt með notkun sökkenda með henni. Fyrir þá sem vilja samfellda línu með sökkenda er bent á tvíhendulínuna Jöklu.
Helstu eiginleikar:
- Línan nýtist sérstaklega vel í stærri ám með mikið vatnsmagn.
- Fjölbreytt lína fyrir bæði léttar smáflugur og þyngri túpur.
- Línan situr hátt á vatnsyfirborðinu og minnkar þannig viðnám.
- Handgerðar lykkjur á báðum endum tryggja auðveldari og öruggari festingar.
- Byggð á sterkum kjarna sem stenst mikið álag og heldur línunni stöðugri í köstum.
- Línuþyngd er áletruð á kápu línunnar til auðkenningar.
- Endingargóð og slitsterk kápa sem tryggir hámarks afköst og góða meðhöndlun.
Guideline Elevation 9' #5
Nám REN 9' #4
Echo Lift 9' #7
Guideline LPX Nymph Einhendupakki 10,2' #3
Echo Lift Einhendupakki 8' #4
Guideline NT11 Salmon 13,9' #9/10
Nám REN 9' #5
Nám REN 14' #9
Nám REN 12,6' #7
Loop ZT 13,2' #8
Guideline NT11 Salmon 10' #7
Loop 7X 11,6' #7 









