Nám REN 12,6′ #7

> Minnsta tvíhendan í REN-seríunni
> Hentar frábærlega í nettari laxveiðiár
> Góð sveigja og mikil tilfinning
> Vegur aðeins 164 gr.

178.900kr.

Á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Þessi stöng er minnsta tvíhendan í REN-seríunni frá Nám. Hún hentar frábærlega í nettari laxveiðiár og býr að góðri sveigju og mikilli tilfinningu. Stöngin nýtur sín best með flotlínu og hefðbundnum flugum sem bornar eru fram með frammjókkandi taumi. Virkilega vel heppnuð tvíhenda fyrir í íslensk ársvæði.

REN eru vandaðar fluguveiðistangir úr smiðju Nám. Þær eru gerðar úr einstakri grafítblöndu með ótrúlegum togstyrk. Þetta gerir það mögulegt að framleiða stangirnar með mjög léttum, fíngerðum topp sem sameinar nákvæmni og gríðarlega næmni. Óframsækin miðlungs djúp hleðsla í miðhluta stanganna veitir góða tilfinningu í köstunum. Niðurstaðan er mikill línuhraði án þess að fórna fínleikanum. Þegar á fyrstu metrum línunnar er stöngin hlaðin, sem gerir veiði á stuttu færi enn ánægjulegri.

Þunnur stangardúkurinn (e. blank) úr nútíma koltrefjum sýnir sig í hefðbundinni dökkbrúnni áferð stanganna. Þær eru með ofurléttum en sterkum lykkjum framleiddar úr títan. Handfangið er úr Delgado-korki í hæsta gæðaflokki. Hjólasætið er úr áli og rafhúðað með svartri áferð samkvæmt hefðbundinni skandinavískri hönnun.