Nám REN 14′ #9

> Öflug tvíhenda sem getur flest allt
> Hentar bæði með flot- og sökklínum
> Nýtur sín vel í veltiköst þar sem ná þarf langt
> Vegur aðeins 194 gr.

184.900kr.

Á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Mjög öflug tvíhenda sem getur flest allt. Þetta er stöng fyrir stærri laxveiðiár þar sem löng köst geta skipt sköpum. Hún hentar bæði með flot- og sökklínum og nýtur sín vel í veltiköst.

REN eru vandaðar fluguveiðistangir úr smiðju Nám. Þær eru gerðar úr einstakri grafítblöndu með ótrúlegum togstyrk. Þetta gerir það mögulegt að framleiða stangirnar með mjög léttum, fíngerðum topp sem sameinar nákvæmni og gríðarlega næmni. Óframsækin miðlungs djúp hleðsla í miðhluta stanganna veitir góða tilfinningu í köstunum. Niðurstaðan er mikill línuhraði án þess að fórna fínleikanum. Þegar á fyrstu metrum línunnar er stöngin hlaðin, sem gerir veiði á stuttu færi enn ánægjulegri.

Þunnur stangardúkurinn (e. blank) úr nútíma koltrefjum sýnir sig í hefðbundinni dökkbrúnni áferð stanganna. Þær eru með ofurléttum en sterkum lykkjum framleiddar úr títan. Handfangið er úr Delgado-korki í hæsta gæðaflokki. Hjólasætið er úr áli og rafhúðað með svartri áferð samkvæmt hefðbundinni skandinavískri hönnun.