Kaitum XT Vöðlupakki IV er góður kostur fyrir veiðimenn sem vilja léttan og þægilegan búnað sem nýtist vel við fjölbreyttar aðstæður. Vöðlurnar eru framleiddar úr 3-laga Bluesign-vottuðu nælonefni og eru hannaðar með einfaldleika og notagildi í huga. Saumalausir fætur að innanverðu draga úr sliti og auka endingu.
Á vöðlunum er stór fóðraður vasi til að verma hendur og fyrir framan hann er rúmgóður renndur vasi fyrir flugubox og annað veiðidót. Að innanverðu er útfellanlegur renndur vasi sem hentar vel fyrir síma eða lykla. Axlarbönd og belti eru teygjanleg og stillanleg, og aftan á vöðlunum er lykkja sem gerir kleift að velja á milli tveggja staðsetninga fyrir beltið. Sandhlífar með krók halda vel yfir vöðluskónum og sokkarnir eru þægilegir í notkun. Vöðlurnar eru framleiddar með umhverfissjónarmið að leiðarljósi og eru efni þeirra Bluesign® vottuð.
Korkers Chrome Lite vöðluskórnir eru einstaklega léttir og hannaðir með innblástur frá íþróttaskóm, sem skilar sér í mikilli hreyfigetu og þægindum. Þeir eru með BOA® M4 vírakerfi sem gerir einfalt að herða og losa skóna. Kling-On Rock™ sóli veitir gott grip á blautu og þurru undirlagi og mögulegt er að bæta við nöglum fyrir aukið öryggi við krefjandi aðstæður.
Skórnir eru úr slitsterku efni með Exo-Tec™ styrkingum sem auka endingu. Vatnsfælin efni og innra frárennsliskerfi tryggja að þeir þorna fljótt og haldast léttir í notkun. Lágur prófíll og sveigjanlegt snið gera þá sérstaklega hentuga fyrir þá sem ganga mikið og vilja lipran og áreiðanlegan vöðluskó.
Nám REN 9,9' #7
Nám REN 12,6' #7
Fishpond Switchback Wading System 2.0 - Mittistaska
Guideline Elevation 13' #8/9
Loop Z1 13' #6
Loop Z1 13,2' #8
Loop Z1 14' #9 



























