IWANA Retro 2:1 Multiplier 3½“ Fluguhjól
IWANA Retro-hjólalínan heldur á lofti arfleifð klassískrar hönnunar í anda Bogdan-hjóla, en er hönnuð frá grunni fyrir veiðimenn nútímans. Retro 3½“ er létt og öflugt hjól með 2:1 hlutfalli, sem þýðir að einn snúningur jafngildir tveimur. Hjólið er hannað fyrir tvíhendur í línuþyngd #5-7 og býr að frábærum eiginleikum.
Sem framleiðandi leggur IWANA áherslu á að sameina klassískt útlit við nákvæmni og endingu. Hjólin eru smíðuð úr nútímaefnum með vönduðu handverki og gríðaröflugu bremsukerfi sem skilar mýkt og stöðugleika í baráttunni við laxinn.
Helstu eiginleikar:
- Klassískt útlit og hönnun í anda Bogdan – með nútímalausnum
- 2:1 margfaldari – tvisvar sinnum fljótvirkari línuinntaka
- Stillanlegt tromlu-bremsukerfi með fallegu hljóði
- Heil bakplata og algjörlega lokuð full frame-bygging
- Handpússuð ebonít sveif
- Hjólið kemur í hágæða handsaumaðri skinntösku
- Einkvæmt ID-númer fyrir ábyrgð og eftirfylgni
Tæknilýsing – SALMON 3½“ 2:1
- Stærð: 3½“ (8,9cm) í þvermál
- Þyngd: 11,6 oz (ca. 329 g)
- Línugeta: 425 gr Skagit + 30 metra rennilína + 150 metra/30 lbs undirlína
- Línuflokkar: Tvíhendur í línuþyngd #5-7