Hatch Finatic 7 Plus (Gen. 2)

> Einstaklega vandað fluguhjól
> Flott á einhendur og switch-stangir
> Bremsubúnaður í hæsta gæðaflokki
> Vegur 238 gr.

122.900kr.

Vara uppseld

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Hatch Finatic 7 Plus er virkilega flott fluguveiðihjól sem hentar vel í íslenska lax- og sjóbirtingsveiði. Þetta er mest selda hjólið í Plus-línunni, enda hefur það allt til brunns að bera. Bremsuflöturinn er mun stærri en í minni hjólunum og heftir auðveldlega för stærstu fiska hérlendis. 7Plus-hjólið hentar bæði á stærri einhendur og minni switch-stangir. Það er 10,16 cm að þvermáli en 2,85 cm á breiddina og rúmar um 200 metra af undirlínu.

Hatch eru bandarísk fluguhjól sem tilheyra hópi þeirra allra bestu á markaðnum. Fyrirtækið hefur framleitt hágæða hjól frá árinu 2003 og nýtur nú virðingar veiðimanna um allan heim.

Önnur kynslóð Hatch Finatic fluguhjólanna kom nýlega á markað. Þau hafa sópað til sín verðlaunum enda einkar vel hönnuð með bremsubúnað eins og hann gerist bestur. Hjólin eru framleidd úr renndu áli og eru útbúin fullkomlega lokuðu bremsukerfi. Hjólin eru hönnuð til að standast átök í ferskvatni sem sjó. Öll þau Hatch hjól sem Veiðiflugur bjóða upp á eru breiðkjarna (e. Large arbor) sem auðveldar veiðimönnum að ná inn slaka línunnar og dregur jafnframt úr línuminni.