Guideline NT11 Fast Full Flex 12′ #7/8 er tvíhenda sem sameinar djúpa sveigju og ótrúlega hraða svörun í einni og sömu stönginni. Hún er hönnuð fyrir veiðimenn sem vilja finna stöngina vinna í gegnum allt kastið, án þess að missa kraft eða línuhraða.
Stöngin beygir sig langt niður í skaftið og gefur veiðimanninum meiri tíma til að setja upp kastið. Þetta gerir hana sérstaklega þægilega í spey-köstum og öðrum köstum þar sem tímasetning skiptir öllu. Þrátt fyrir þessa djúpu sveigju er stöngin langt frá því að vera hæg, því þegar hún losar kraftinn skilar hún línunni af miklum hraða og nákvæmni.
Toppurinn er stífari en á hefðbundnum full-flex stöngum, sem hjálpar til við að halda góðri stjórn á línunni og lyfta henni auðveldlega úr vatni, jafnvel þegar veitt er með lengri skotlínur eða þyngri sökklínur. Þetta gefur stönginni mikinn fjölhæfni og gerir hana hæfa bæði í léttari aðstæðum og þegar meira reynir á búnaðinn.
Stöngin hentar sérstaklega vel í sjóbirting og lax. Hún vinnur mjúklega í baráttu við fisk og dregur úr höggum, sem verndar tauma og gefur betri stjórn þegar fiskur tekur harkalega á. Uppbygging stangarinnar byggir á háþróuðum efnum sem skila léttleika, styrk og mikilli endingu. Hún er hönnuð til að þola mikla áreynslu og halda eiginleikum sínum, jafnvel eftir langa og erfiða daga við veiðar.
Guideline NT11 Fast Full Flex 12′ #7/8 er stöng fyrir veiðimenn sem vilja meiri tilfinningu í kastinu án þess að fórna krafti. Hún er nákvæm, öflug og fyrirgefandi. Hún gerir spey-köstin bæði auðveldari og skemmtilegri.
Helstu einkenni
• Djúp sveigja sem gefur meiri tíma og betri tilfinningu í kasti
• Hröð svörun sem skilar miklum línuhraða
• Stífari toppur sem bætir stjórn og lyftigetu
• Hentar vel í spey-köst við fjölbreyttar aðstæður
• Öflug og fjölhæf stöng fyrir sjóbirting og lax
Loop Evotec G5 7/9
Loop Opti Speedrunner - Storm Blue
Guideline WP Streamer - Flugubox
Loop Evotec G5 3/5
Loon UV Hnýtingasett
GL Losunartöng (Stór)
Loop Z1 Einhendupakki 7,9' #3
Guideline Roller Bag - 150L Ferðataska
Loop Opti Strike - Twilight Violet
Fortis OverWraps Yfirgleraugu - Switch
Frödin FITS Túpunál
Loop Classic 8/11
Loon Flexistripper Línukarfa
Waterfall Drykkjamál
Sealskinz Salle - Vatnsheld Derhúfa Olive
Loop Z1 Einhendupakki 10' #5
Taumaklippur
Guideline Fario Click 2/3
Echo Base 2/3
Fishpond Hailstorm Soft Cooler Sand - Kælitaska
Úr búri náttúrunnar
Guideline Elevation 9,9' #6
Fishpond San Juan Brjóstpoki
CND Gravity 12,7' #8/9 











