Glæsilegur fluguveiðipakki í silungsveiðina sem inniheldur LPX Tactical flugustöng, Fario LW fluguveiðihjól, undirlínu og Bullet+ flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast skráið óskir um aðra línugerð í athugasemdareitinn við pöntun.
LPX Tactical eru háþróaðar silungsveiðistangir úr smiðju Guideline. Þær hafa skýra og mjög nákvæma virkni sem kemur fram smám saman eftir því sem stöngin er hlaðin meira. Þær eru hraðvirkar með djúpri ¾ hleðslu og miklum stöðugleika á kastferlinum. Stangirnar eru einstaklega aðgengilegar og henta jafnt byrjendum sem lengra komnum. Á stuttu færi gefa toppurinn og miðhlutinn góða tilfinningu, sem skiptir miklu máli í viðkvæmum aðstæðum, á meðan neðri hlutinn tekur við þegar kastsveiflan lengist og meiri krafta þarf.
Stangirnar sem eru 9 fet að lengd eru sérlega léttar og henta þeim sem kjósa klassíska lengd. Þær eru stilltar fyrir tiltekna línuþyngd og veita veiðimanni einstaklega létta og nákvæma kasttilfinningu. Þær eru fjölhæfar og nýtast vel í ólíkum aðstæðum. Þær verða fyrir minni áhrifum af vindi en 9,9 feta útgáfurnar og eru örlítið hraðari. Línuþyngdir #2–3 henta einstaklega vel í púpuköst og þurrflugur þar sem nákvæmni og fín framsetning ræður ríkjum. Línuþyngdir #4–5 eru fjölnota stangir sem takast á við flesta strauma og veiðiaðstæður. Línuþyngd #6 hentar vel í vindasömum aðstæðum og skilar góðum köstum með púpur og straumflugur. #7 er öflugasta stöngin í línunni og nýtist í þungar straumflugur og sökklínur.
Stönginni fylgir Fario LW fluguveiðihjól frá Guideline sem er framleitt úr rennsluáli. Hjólið er létt í vöfum, fullkomlega lokað og kemur þannig í veg fyrir að línan flækist á milli spólu og ramma. Það er útbúið vatnsheldu og öflugu diskabremsukerfi sem þarfnast lágmarks viðhalds. Breiðkjarna hönnunin gerir veiðimanni kleift að ná inn slaka hratt og dregur úr hættu á línuminni.
Hjólið kemur uppsett með undirlínu og Bullet+ flotlínu frá Guideline. Bullet+ er betrumbætt útgáfa af vinsælustu flotlínu okkar og veitir betri stjórn og mýkri framsetningu en forveri hennar. Línan heldur jafnvægi í lofti og skilar löngum, nákvæmum köstum með lítilli fyrirhöfn – þrátt fyrir stuttan haus sem mælist 9,25 metrar.
Hún hentar einstaklega vel fyrir íslenskar aðstæður, bæði í yfirhandarköstum og veltiköstum, og vinnur vel með ólíkum flugum – allt frá þurrflugum upp í straumflugur og keilutúpur. Línan er með grágrænan haus, skærgræna rennilínu og lykkjur á báðum endum. Hún er auðþekkjanleg með ID-merki að framan og er framleidd án skaðlegra efna. Bullet+ er fjölhæf lína sem hentar jafnt í krefjandi aðstæðum sem léttari veiði.
Ítarupplýsingar um stöngina í pakkanum
- Háþróuð A.P M4.0™ koltrefjauppsetning.
- Frábærir kasteiginleikar.
- Fer vel með örgranna tauma við viðkvæmar aðstæður.
- Mött áferð stangarinnar sér til þess að sólarljós endurkastist ekki á veiðistaðinn.
- Náttúrulega grátt útlit með grænum blæ og dökkgrænum vafningum.
- Handfang úr vönduðum korki með háum þéttleika.
- Hjólasæti með viðarinnleggi og ágreyptu Tactical-merki.
- Rafhúðaðir málmhlutar eru með mattri áferð til að endurkasta síður sólarljósi.
- Þökk sé nýrri tækni eru stangirnar einstaklega léttar.
- Léttar lykkjur úr títani með zirconia-innleggi.
- Smærri lykkjur eru PVD-húðaðar með mattri grárri áferð.
- Stöngin kemur í stangarsokk og hólk sem unninn er úr endurunnum efnum.
C.A.P M4.0 tæknin
C.A.P M4.0™ koltrefjauppsetningin skapar einstaka sveigju með hraðri endurheimt og mikilli nákvæmni. C.A.P tæknin er með flóknu áslægu mynstri, CAP (e. Complex Axial Pattern) sem parað er við einátta koltrefjauppbyggingu. Með tækninni eru koltrefjalög lögð upp í mismunandi horn hvert á annað til að hámarka styrk og stöðugleika í allar áttir. Í einátta óofnu koltrefjamynstri liggja allar trefjarnar í einni samsíða stefnu, sem tryggir hámarksstyrk stangardúksins. M4.0™ er kvoðan eða plastefnið (e. Resin) sem notað er í þessháttar uppbyggingu. Vegna þeirra eiginleika sem efnið hefur er fyllt betur í eyður stangardúksins en með öðrum hefðbundnum efnum sem leiðir af sér meiri styrk. Það dregur einnig úr magni plastefnisins sem annars þyrfti að nota sem endurspeglast í því hve léttar stangirnar eru.
Fishpond Thunderhead Eco Sling Shale - Axlartaska
Guideline The Snake Derhúfa - Caramel
Fishpond Thunderhead Yucca Small - Vatnsheld Mittistaska
Echo Lift 8' #4
Tacky Original Flugubox Orange
Frödin Túpuveski – Medium ‘X‘
Fishpond Blizzard Cooler Sand - Kælitaska
Patagonia Fly Catcher Fitz I. Green Derhúfa
Tacky Daypack Flugubox
Áhaldaspóla
Guideline WP Slit Foam Swing Leaf - Flugubox
Loon Rouge Skæratöng
Stonfo Þræðari
Loon Fast Cast Tool - Línuhreinsunartæki
Guideline Elevation Einhendupakki 9,9‘ #7
Patagonia Fly Catcher Hat W. Stone Derhúfa
Guideline Elevation 9,9' #6
Guideline LPX Nymph 10,8' #3
Guideline Experience Trucker Derhúfa - Khaki/Ivory
Guideline Stretch Vöðluelti
Dropper Festingar
Guideline Elevation Einhendupakki 9‘ #5
Coghlans Flugnanet
Fishpond Thunderhead Eco Shale - Vatnsheld Mittistaska
Guideline Double Side Stillwater Flugubox
Fishpond Cimarron Sand - Vöðlutaska
Loon Snake River Mud - Sökkefni
Fishpond Henry's Fork Hat - Honey Derhúfa
Veniard Cock Pheasant Centre Tails Mixed
Fishpond Tacky Pescador Large Flugubox
Loon Fly Spritz 2 - Þurrfluguúði
Fishpond Blizzard Kælitaska
Fishpond Swivel Áhaldagormur
Guideline Logo Svört Derhúfa
Fishpond Dakota 31" stanga- og hjólataska
Fishpond Upstream Tech Veiðivesti (Dömu)
Zap-A-Gap Lím með bursta
Fishpond Nomad Native Silungaháfur
Fishpond Smábrúsafesting
Stonfo Hair Stacker - Hárjafnari
Acryl-þynnir 

















