LPX Chrome tvíhendupakkinn frá Guideline er sérsniðinn fyrir laxveiði í íslenskum straumvötnum. Hann samanstendur af 12,6 feta LPX Chrome tvíhendu, Halo fluguveiðihjóli, undirlínu og Sandá tvíhendulínu – samsett til að skila hámarksárangri við fjölbreyttar aðstæður. Ef óskað er eftir annarri línu má taka það fram í skilaboðareitnum í körfunni.
Stangirnar eru smíðaðar með nýjustu tækni frá Guideline og bjóða upp á ¾ djúpa hleðslu sem virkjast snemma í kastinu án þess að tapa krafti eða hraða. Þær eru léttar, með mikla stöðugleika og viðbragðsflýti sem veitir veiðimanni einstaka tilfinningu í hverju kasti. 12,6′ stærðin er einstaklega fjölhæf fyrir miðlungsstórar ár og nýtist vel bæði í hefðbundinni laxveiði og veiði á sjóbirting. Þessar stangir eru hágæða í öllum efnum og bjóða upp á eiginleika sem sjaldan finnast í stöngum í þessum verðflokki.
Guideline Halo fluguveiðihjólið sem fylgir með er úr sterku renndu áli. Hjólið er með lokuðu breiðkjarna og vatnsheldu diskabremsukerfi sem er bæði öflugt og viðhaldsfrítt. Létt hönnun og stöðug dráttargeta tryggja gott jafnvægi og örugga notkun við allar aðstæður.
Á hjólinu er undirlína og Sandá – vönduð tvíhendulína þar sem skothaus og rennilína mynda eina samfella heild. Hún er þróuð með fjölbreyttar veiðiaðferðir í huga og nýtist einstaklega vel í meðalstórum ám. Sandá er ögn framþung og hentar sérstaklega vel í stuttum köstum þar sem aðeins hluti skothaussins er fyrir utan toppinn – en hún skilar einnig góðum köstum á meðallöngu færi, með bæði smáflugum og túpum. Hún flýtur hátt, leggst mjúklega og auðveldar stjórn og tímasetningu.
Ítarupplýsingar um tvíhenduna
Leyndarmálið á bak við frábrugðna virkni stanganna er ný tækni frá Guideline sem þeir nefna C.A.P M4.0™. Um er að ræða háþróaða koltrefjauppsetningu sem skapar einstaka sveigju stanganna. Þeim er best lýst sem framsæknum miðlungshröðum (e. Medium Fast) stöngum með hraðri endurheimt (e. Fast Recovery). Toppurinn er afar stöðugur og nær að framkalla þröngan línubug, auk þess sem hann er nægjanlega öflugur til að lyfta þungum sökklínum.Meðan á flugukastinu stendur tengist veiðimaðurinn neðri hluta stangarinnar sem skilar ótrúlegum áhrifum þegar stöngin er stöðvuð í fram- og afturkastinu. Þetta gerir það að verkum að unnt er að ná löngum köstum með afar litlu afli. Hliðarstöðugleiki LPX Chrome gerir það að verkum að flugulínan fylgir stönginni einkar vel þegar hanni er sveiflað og snúið í kastinu. Þessir eiginleikar leiða af sér nákvæmari fluguköst, aukinn línuhraða og betri línubug. Þetta er sannarlega ný virkni sem markar ákveðin þáttaskil til framtíðar hjá Guideline.
Hjólasæti LPX Chrome flugustanganna er sérhannað og er korkurinn í handfanginu fyrsta flokks. Til að tryggja langa endingu er það búið sérstökum gúmmí-styrkingum sem munu standa tímans tönn. Virkni hverrar stangar er misjöfn eftir lengd og línuþyngd til að nýtast veiðimönnum í ólíkum aðstæðum. Guideline mælir með tvennskonar línum með þessum stöngum en þær eru 3D+, í venjulegri lengd eða styttri, eða 4D Compact Multi Tip línukerfinu.
- Háþróuð A.P M4.0™ koltrefjauppsetning.
- Miðlungshröð með uppbyggingu sem hraðar endurheimt.
- Fjölhæf stöng sem ræður við allar línugerðir.
- Ofurléttar með lágri sveifluþyngd sem gerir þér kleift að veiða lengi án þess að þreytast.
- Blágrá gljáandi áferð með samsvarandi vöf.
- Hágæða korkur með sérstakri styrkingu.
- Rafhúðað hjólasæti með einstöku álagsþoli.
- Léttar og tæringarþolnar lykkjur úr títani með zirconia-innleggi.
- Efri lykkjur eru PVD-húðaðar með mattri grárri áferð.
- Stöngin kemur í stangarsokk og hólk sem unninn er úr endurunnum efnum.
C.A.P M4.0 tæknin
C.A.P M4.0™ koltrefjauppsetningin skapar einstaka sveigju með hraðri endurheimt og mikilli nákvæmni. C.A.P tæknin er með flóknu áslægu mynstri, CAP (e. Complex Axial Pattern) sem parað er við einátta koltrefjauppbyggingu. Með tækninni eru koltrefjalög lögð upp í mismunandi horn hvert á annað til að hámarka styrk og stöðugleika í allar áttir. Í einátta óofnu koltrefjamynstri liggja allar trefjarnar í einni samsíða stefnu, sem tryggir hámarksstyrk stangardúksins. M4.0™ er kvoðan eða plastefnið (e. Resin) sem notað er í þessháttar uppbyggingu. Vegna þeirra eiginleika sem efnið hefur er fyllt betur í eyður stangardúksins en með öðrum hefðbundnum efnum sem leiðir af sér meiri styrk. Það dregur einnig úr magni plastefnisins sem annars þyrfti að nota sem endurspeglast í því hve léttar stangirnar eru.
Krinkle Mirror Flash
Loop Multiblue Húfa
Guideline Badge Trucker Cap Forest Derhúfa
Loon UV Fluorescing Clear Finish - Lakk
Guideline The Camper Dark Grey Derhúfa
Stonfo Bobbin Elite 2 - Keflishalda
Patagonia Fly Catcher Hat W. Stone Derhúfa
Patagonia Broadcaster Hat W. Stone Derhúfa
Guideline Badge Old Gold Derhúfa
Loop Connecting Derhúfa
Loop Logo Húfa Rauð
Echo Lift Einhendupakki 9' #8
Veniard Peacock Sword Tails
Leatherman REV® PEG
Guideline Salmon Suede Derhúfa - Tan
Patagonia Stealth 25L M Bakpoki - R. Green
Echo Lift 8' #4
Fishpond Henry's Fork Hat - Honey Derhúfa
Sealskinz Salle - Vatnsheld Derhúfa Orange
Patagonia Fly Catcher Hat B. Sage Derhúfa
Stonfo Stangarhaldari með segli
Fishpond Brim Beanie Spruce
Jungle Cock Gervifjaðrir
Losunartöng
Tacky Daypack Flugubox 2X
Loop Fly Rods & Reels Derhúfa
Fishpond Dorsal Fin Quilted Trucker Hat Campfire Derhúfa
Loop Z1 11,6' #7
Fishpond Tacky Pescador Flugubox XL
Loop Fly Trucker Cap Burnt Russet Derhúfa
Fishpond Headgate Taumaspóluhaldari
Veniard Hare Mask
Guideline Elevation 9' #6
Leatherman WAVE® PLUS PEG
Taumaklippur
Fishpond Cross Current Brjóstpoki
Guideline LPX Nymph 10,2' #4
Guideline The Waterfall Solartech Derhúfa
Patagonia Fitz Roy Trout Trucker Hat G. Green Derhúfa
Loon Krókabox / Kónabox
Guideline LPX Tactical 9' #3
Guideline Experience Trucker Derhúfa - Khaki/Ivory
Veniard Teal Duck Flank Feathers
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #4 






















