Guideline Halo Black Stealth 4/5

> Létt og fjölhæft hjól fyrir silungsveiði
> Hentar stöngum í línuþyngd #4–5
> Lokuð grind og 1,5 kg innsigluð kolefnisbremsa
> Vegur aðeins 139 g

41.900kr.

Á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Guideline Halo 4/5 er sniðið fyrir alhliða silungsveiði – hvort sem þú ert með þurrflugu í nettum læk, púpu í stöðuvatni eða létta straumflugu í fallegri á. Það býr yfir sömu nákvæmu smíði og sléttu bremsu og önnur hjól í Halo-línunni. Hjólið er smíðað úr hágæða áli með CNC-tækni. Útlitið er látlaust og fágað – tilvalið fyrir þá sem kjósa virknina í fyrirrúmi án þess að fórna stílnum.

Diskabremsan er innsigluð og byggð úr kolefnis- og stálskífum, og veitir allt að 1,5 kg mótstöðu – nógu mikið til að takast á við silung og sjóbirting, en samt næmt fyrir fínni taumum. Full frame grindin tryggir að þunnar línur og taumefni haldist þar sem þau eiga að vera, og stór spóla (large arbor) tryggir hraðari línuupptöku og minnkar minnissöfnun – mikilvægt í köstum með léttum flugum.

Helstu eiginleikar:

• Létt og nákvæmt hjól fyrir fjölbreytta silungsveiði
• Lokuð grind – heldur taumum og línum á réttum stað
• Sealed diskabremsa – 1,5 kg hámarksafl, mjúk og nákvæm
• CNC-rennt úr áli – slitsterkt og létt
• Bremsuhnappur í sama lit og hjól – látlaust útlit
• Black Stealth áferð með krómuðum smáatriðum
• Nylon hulstur fylgir

Tæknilýsing:

• Stærð: #4–5
• Þyngd: 139 g
• Bremsa: Sealed disc drag (1,5 kg max)
• Efni: CNC ál
• Litir: Svartur með krómuðum hnöppum
• Spólur fáanlegar aukalega