Loop Opti Runner er eitt mest selda fluguhjólið frá Loop og nú fáanlegt í með silfruðu yfirbragði (Mist Silver). Hjólið er með töluvert mikið þvermál sem gefur því bæði kraftmikið útlit og tryggir skilvirka línuinntöku sem margir veiðimenn kunna vel að meta. Runner hentar á einhendur í línuþyngd #7–9, en nýtur sín einnig sérstaklega vel á switch-stöngum þar sem jafnvægi og fjölhæfni skipta sköpum. Það er aðeins 235 grömm að þyngd og sameinar styrk og léttleika á einstakan hátt.
Opti-hjólin frá Loop hafa sannað sig í gegnum áratugi sem áreiðanleg og endingargóð. Runner er breiðkjarna hjól með einkennandi V-laga spólu sem gerir veiðimanni kleift að draga inn slaka hratt og örugglega. V-laga hönnunin tryggir jafnari legu línunnar og dregur úr hættu á línuminni – forskot sem veiðimenn finna strax í notkun.
Í hjólinu er Power Matrix Drag System, eitt það öflugasta sem völ er á í fluguhjólum. Bremsan er mjúk og jöfn í átaki, fullkomlega stillanleg og lokuð gegn vatni og tæringu. Hjólið er smíðað úr hágæða áli með ryðfríum og sérmeðhöndluðum hlutum sem auka styrk og tryggja langa endingu.
Loop Opti Runner hefur áunnið sér sess sem eitt söluhæsta hjólið frá Loop á Íslandi. Í Mist Silver kemur það fram í tímalausu og glæsilegu útliti, en heldur öllum þeim eiginleikum sem hafa gert það að fyrsta vali margra veiðimanna um árabil.
Stangarhaldari í vesti
Loon Bite Ease - Flugnabitsáburður
Hagla- og kúlugeymslur
Loon Áhaldaspóla
Loon Lochsa - Þurrflugugel
Umpqua UPG Foam WP Weekender Large Olive - Flugubox
Fishpond Headgate Taumaspóluhaldari
Loon Amadou Þurrfluguklútur
Stonfo Taumaspóluhaldari
Tacky Original Flugubox 2X
Patagonia Fly Catcher R. Tan Derhúfa
Shark Tooth Skurðarteygja M
Tacky Daypack Flugubox
GL Áhaldaspóla
Rapala Laxaháfur L 












