Guideline Experience DW Veiðivesti

Experience DW (e. Deep Wading) er einfalt og stílhreint veiðivesti með marga góða kosti. Vestið hentar þeim sem vilja geta vaðið djúpt en þurfa ekki svo mikið geymslurými undir fluguboxin. Á vestinu eru tveir stórir vasar en hæð þeirra má hækka og lækka að vild. Þá eru tvö rennd tækjahólf sem rúma tangir, flotefni og fleiri tól.

25.995kr.

Vara uppseld

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Experience DW (e. Deep Wading) er einfalt og stílhreint veiðivesti með marga góða kosti. Vestið hentar þeim sem vilja geta vaðið djúpt en þurfa ekki svo mikið geymslurými undir fluguboxin. Á vestinu eru tveir stórir vasar en hæð þeirra má hækka og lækka að vild. Þá eru tvö rennd tækjahólf sem rúma tangir, flotefni og fleiri tól. Veiðivestið er einkar létt (543 gr.) og þægilegt en á því eru góðir axlapúðar. Tilvalið fyrir þá sem vilja veiða létt og þurfa ekki að burðast með mikið af veiðidóti.

Veiðivestið er í einni stærð og unnt að stilla fyrir hvern og einn. Það er útbúið eins beggja vegna, að undanskildum flugupadda á vinstri hliðinni. Að utanverðu er möskvapoki undir smáhlutina, s.s. taumaspólur eða flotefni. Þá eru á vestinu lykkjur sem má klemma losunartöngina um, eða önnur samskonar tól. Tvær geymslur eru undir veiðidót, báðar með áhaldagormi sem má fjarlæga eftir þörfum. Tveir renndir vasar eru að aftan, sá stærri rúmar veiðijakkann auðveldlega. D-lykkja er á baki fyrir veiðiháfinn.