Guideline Elevation Switch-pakki 11′ #6/7

> Nett stöng í stöðuvötn og minni ár
> Hentar í silunginn og smærri lax
> Stönginni fylgir Reach hjól og Bullet flotlína
> Stöngin er í 6-hlutum – línuþyngd 14-17 gr.

88.900kr.

Vinsamlega veldu inndrátt fluguhjólsins:

Insufficient stock

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Áhugaverður switch-pakki sem inniheldur Elevation flugustöng, Reach fluguveiðihjól, undirlínu og Bullet Evolve 2.0 flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.

Elevation flugustangirnar eru afar léttar meðalhraðar stangir sem gerðar eru fyrir breiðan hóp veiðimanna. Hönnun og framleiðsla stanganna er um margt framúrstefnuleg en stangarpartar þeirra eru umtalsvert umhverfisvænni en gengur og gerist. Þetta er sú stefna sem Guideline hefur tekið í átt að nútímalegri framleiðsluþáttum. Stangirnar eru framleiddar eins efnislitlar og kostur er án þess að það komi niður á kasteiginleikum eða styrk. Toppurinn er afar næmur en um leið stöðugur og hleðst stöngin með jöfnu átaki niður í skaft. Hraði stangarinnar er þannig heppilegur fyrir þá sem eru að byrja í fluguveiði, en stöngin fyrirgefur vel mistök á kastferlinum. Elevation eru nákvæmar stangir og með þeim er unnt að ná miklum línuhraða. Þessi switch-stöng er í sex hlutum og því tilvalin þegar ganga þarf á veiðislóð. Stöngin hentar í silungsveiði, sérstaklega í stöðuvötnum, en nýtist þó einnig í straumvatni. Stöngin er ákjósanleg fyrir púpur, þurrflugur, straumflugur, hefðbundnar laxaflugur og léttari túpur.

Stönginni fylgir Reach fluguveiðihjól frá Guideline sem framleitt er úr steyptu áli, en það er unnið þannig að áferð þess er silkimjúk. Hjólið býr að góðri diskabremsu þar sem kolefnisskífum og ryðfríum diskum er staflað á móti hvor öðrum. Bremsubúnaðurinn er lipur og nákvæmur, auk þess sem kerfið er algjörlega lokað.

Hjólið er uppsett með undirlínu og Bullet Evolve 2.0 flotlínu sem er framþung með 9,25 metra löngum haus. Línan fellur mjúklega á vatnsyfirborð og hentar því í hverskonar aðstæðum. Auðvelt er að hlaða stöngina með línunni og bæði á lengra og skemmra færi. Línan nýtur sín hvað best þegar henni er aðeins falskastað einu sinni, en hún er litaskipt sem auðveldar veiðimanni lengdarstjórnun og hleðslu stangarinnar.

Elevation switch-pakkinn er virkilega athyglisverður og á afar sanngjörnu verði.