Guideline Aeon – Black/Gold #9/11

> Kraftmikið hjól fyrir laxveiði
> Hentar tvíhendum í stærðum #8-#11
> Sterk smíði og örugg bremsa
> Vegur 350 gr.

91.900kr.

Á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Guideline Aeon – Black/Gold #9/11 Fluguhjól

Aeon #9/11 er öflugt hjól fyrir veiðimenn sem stunda laxveiði við krefjandi aðstæður. Það er rennt úr hágæða áli, smíðað fyrir mikið álag og langa endingu. Eiginleikar þess henta vel í stærri ár, með þyngri línum og stórum fiskum. Hjólið er búið innsiglaðri kolefnisbremsu með allt að 7,5 kg mótstöðu, sem veitir stöðuga og örugga stýringu bæði í köstum og bardaga. Full-frame hönnunin tryggir jafnvægi og ver línuna gegn flækjum. Stór spóla auðveldar línuinntöku til muna.

Bremsuhnappurinn er vænglag með þægilegu gripi sem auðvelt er að snúa– hvort sem það er kalt eða blautt. Hjólið hentar sérstaklega vel fyrir tvíhendur í stærðum #8/9 til #10/11, 13–15 feta að lengd. Línurýmd er merkt innan á fótinn, svo þú sérð alltaf hvað hjólið rúmar.

Helstu eiginleikar:

• Rennt úr hágæða áli – slitsterkt og stöðugt
• Kolefnisbremsa með allt að 7,5 kg afli
• Full-frame grind sem eykur jafnvægi og vernd
• Stór spóla (large arbor) – fljótleg upptaka, minna línuminni
• Vænglaga bremsuhnappur – auðvelt að stilla í erfiðum aðstæðum
• Línurýmd merkt innan á hjólfótinn

Tæknilýsing:

• Stærð: #9/11
• Þvermál: 110 mm
• Spólubreidd: 32 mm
• Þyngd: 350 g
• Línurýmd: t.d. Spey #9/10 (34 m) + 200 m 30 lb undirlína
• Línuflokkar: Hentar tvíhendum í #8/9 til #10/11