Vinsælasta axlartaskan frá Fishpond er nú orðin enn betri. Taskan er framleidd úr léttu vatnsfráhrindandi öndunarefni og eru rennilásar vatnsvarðir frá YKK. Það eru fjórir stórir aðalvasar á töskunni. Einn er með tveimur innri vösum og með útrennanlegum flugupadda. Tveir af þessum vösum eru stór hólf. Síðasti vasinn er lítill en tilvalinn til þess að geyma t.d síma eða bíllykla.
Taskan er með D-lykkjum og festingarpunktum fyrir margs konar aukatól og tæki. Á hana má festa taumaklippur, losunartöng, taumaspóluhaldara eða hvað annað sem veiðimenn kjósa. Einnig er hólf fyrir drykkjarílát utan á botni töskunnar. Stærðin er 33 x 22 x 23 cm og er þyngd töskunnar 900 grömm.
Sjálfbærni
Ný vara, gamalt efni
Fishpond er leiðandi fyrirtæki á markaði þegar kemur að sjálfbærri framleiðslu. Fyrir meira en áratug síðan hóf fyrirtækið að nota ónýt fiskinet til framleiðslu á töskum og fylgihlutum. Í dag eru nær allar vörur Fishpond framleiddar úr endurunnum efnum, s.s. netum og plastflöskum. Þannig tekst fyrirtækinu að skapa nýja hluti úr gömlum efnum, umhverfinu til heilla.
Bodkin - Nál með krók
Veniard Grey Partridge Neck Natural
Loon Razor 4“ Hnýtingaskæri
Elite Fluguhnýtingasett
Guideline Elevation Einhendupakki 9‘ #6
Krinkle Mirror Flash
Þræðari Elite 1,4 mm
Loon Rouge Skæratöng
Morsetto Airone Ferðahnýtingaþvinga
Veniard Teal Duck Flank Feathers
Loop ZX Einhendupakki 10' #8
Guideline Elevation Tvíhendupakki 13‘ #8/9
Fishpond Ripple Hjólataska M 










