Fishpond Thunderhead Eco Brjóstpoki

Sniðug 5 lítra geymslulausn frá Fishpond sem verndar veiðibúnaðinn frá öllum veðrum. Brjóstpokinn er í raun nett taska sem hugsuð er undir nauðsynlegasta búnaðinn við veiðar. Á henni eru margar festingar og hulstur fyrir veiðiháfinn.

37.995kr.

Á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Sniðug 5 lítra geymslulausn frá Fishpond sem verndar veiðibúnaðinn frá öllum veðrum. Brjóstpokinn er í raun nett taska sem hugsuð er undir nauðsynlegasta búnaðinn við veiðar. Á henni eru margar festingar og hulstur fyrir veiðiháfinn. Brjóstpokann má nota einan og sér, en hann má einnig festa framan á bakapoka frá Fishpond. Hann er framleiddur úr hinu frábæra NewStream efni sem er algjörlega vatnshelt og þolir mikið hnjask. Stærð brjóstpokans er 23 x 18 x 10 cm og er þyngd hans 476 grömm.

Sjálfbærni

Ný vara, gamalt efni

Fishpond er leiðandi fyrirtæki á markaði þegar kemur að sjálfbærri framleiðslu. Fyrir meira en áratug síðan hóf fyrirtækið að nota ónýt fiskinet til framleiðslu á töskum og fylgihlutum. Í dag eru nær allar vörur Fishpond framleiddar úr endurunnum efnum, s.s. netum og plastflöskum. Þannig tekst fyrirtækinu að skapa nýja hluti úr gömlum efnum, umhverfinu til heilla.