Fishpond Thunderhead Eco Sling Yucca – Axlartaska

Thunderhead axlartaskan er hluti af nýrri vörulínu frá Fishpond, framleidd úr gríðarsterku efni sem endurunnið er úr plasti. Axlartaskan er algjörlega vatnsheld og búin nýrri kynslóð rennilása með ljúfloku.

49.995kr.

Vara uppseld

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Thunderhead axlartaskan er hluti af nýrri vörulínu frá Fishpond, framleidd úr gríðarsterku efni sem endurunnið er úr plasti. Axlartaskan er algjörlega vatnsheld og búin nýrri kynslóð rennilása með ljúfloku. Taskan er gerð fyrir mikla notkun og hnjask og er frágangur því eins og best verður á kosið. Hún er hönnuð þannig að unnt sé að veiða með töskuna á sér.

Í töskunni er eitt stórt hólf auk rennds vasa undir smáhluti, að framanverðu er stórt hólf með rennilás. Á henni eru margar festingar svo unnt er að hengja á töskuna ýmis tæki, samsettar veiðistangir eða stangarhólka. Stærð töskunnar er 40 x 23 x 18 cm, hún vegur 0,8 kg.

Sjálfbærni

Ný vara, gamalt efni

Fishpond er leiðandi fyrirtæki á markaði þegar kemur að sjálfbærri framleiðslu. Fyrir meira en áratug síðan hóf fyrirtækið að nota ónýt fiskinet til framleiðslu á töskum og fylgihlutum. Í dag eru nær allar vörur Fishpond framleiddar úr endurunnum efnum, s.s. netum og plastflöskum. Þannig tekst fyrirtækinu að skapa nýja hluti úr gömlum efnum, umhverfinu til heilla.