Driva Zip Vöðlupakki I er góður kostur fyrir veiðimenn sem vilja léttan og þægilegan búnað sem endist vel. Vöðlurnar eru gerðar úr fjögurra laga endurunnu pólýester efni sem er bæði slitsterkt og mjúkt viðkomu. Þær henta vel fyrir langa veiðidaga þar sem hreyfing er mikil, enda sniðið sérstaklega mótað yfir hné og setsvæði.
Scale™ PRO himnan tryggir góða vatnsheldni og öndun og efni vaðlanna eru bluesign® vottuð og án PFAS-efna. Framan á þeim er TiZip® MasterSeal rennilás sem gerir auðvelt að fara í og úr.
Á brjóstinu eru tveir rúmgóðir YKK AquaGuard® vasar með rennilásum fyrir flugubox og annað veiðidót. Fyrir neðan eru opnir vasar til að verma hendur. Að innan er renndur vasi og festiflötur fyrir flugur. Á bakinu er D-lykkja fyrir háf og Hypalon festingar fyrir aukahluti.
Axlaböndin eru teygjanleg og stillanleg og mittisbeltið situr vel án þess að þrengja. Sokkarnir eru úr Comfort Plus™ neoprene efni og mótaðir fyrir hvorn fót. Neðst eru Hybrid Gravel Guard™ hlífar sem liggja þétt að og halda sandi og smásteinum úti.
Í pakkanum er val á milli tveggja gerða af vöðluskóm. Korkers Stealth Sneaker skórnir eru léttir og liprir og henta vel þeim sem ganga mikið. Laxá Traction skórnir eru sterkari í sniði með negldum gúmmísóla sem veitir gott grip á sleipu undirlagi og góðan stöðugleika.
Nám REN 12,6' #7
Nám REN 11,6' #6
Guideline NT11 Salmon 13,9' #9/10
Stonfo Bobbin Elite - Keflishalda 









































