CND Nordic 14′ #9/10 er fjögurra hluta tvíhenda sem vegur 230 grömm. Þetta er öflug stöng sem er hönnuð fyrir fjölbreytta veiði í stærri laxveiðiám. Hún kastar þyngstu línum án fyrirhafnar og gefur veiðimanni fullkomna stjórn við kröfuharðar aðstæður. Stöngin býr yfir gríðarlegu afli og er sannkallaður vinnuhestur.
Við þróun Nordic stangarlínunnar var markmiðið að búa til Scandi-stöng með öflugri toppi en gengur og gerist, ásamt því að auka tilfinningu niður skaftið. Með CND Nordic 14′ er því markmið sannarlega náð: þetta er mjög kraftmikil stöng sem heldur mýkt og næmni og nýtist í flestum aðstæðum þegar stórlax er annarsvegar.
Stöngin er smíðuð úr háþróuðu kolefni með Alps hjólasæti, fyrsta flokks korki og kemur í Cordura-hólki. Notaðar eru sérstakar kolefnissamsetningar sem veita hina réttu sveigju og virkni – valdar úr yfir 100 tegundum prepreg-efna. Micro pitch-tæknin skilar aukinni fjöðrun í kasti, og Hitena-epoxý yfir vafningum tryggir slitstyrk og langa endingu.
Við mælum með eftirfarandi línum á stöngina:
Jöklu sem vegur 550 grain + 15‘ línuenda.
Sog skothausinn sem vegur 550 grain + 15‘ línuenda.
Rangá sem vegur 500 grain + 15‘ línuenda.