Aquanova Wind Taper fer best með litlum og meðalstórum flugum, bæði hefðbundnum krókum og meðalstórum túpum. Þyngd haussins liggur tiltölulega framarlega í línuhausnum sem gerir veiðimanni auðveldara fyrir að kasta á móti vindi. Þá er einfalt að ná fram löngum köstum þegar svo ber undir. Kápa línunnar er teflonhúðuð til að minnka viðnám og auka þannig línuhraða í gegnum lykkjur stangarinnar.
Lítið sem ekkert minni er í þessum línum, þ.e. þær kuðlast ekki, jafnvel í mjög köldu veðri. Línan er fáanleg í línuþyngdum #6 – #9 og er heildarlengd hennar 32 metrar.
Aquanova-línurnar eru framleiddar af kanadíska fyrirtækinu Norhern Sport. Meginstarfsemi Northern Sport hefur falist í framleiðslu á flugulínum sem seldar eru undir merkjum annarra fyrirtækja um allan heim, en minni áhersla hefur verið lögð í sölu á línum undir eigin vörumerki. Veiðiflugur munu nú bjóða upp á þessar flugulínur sem ódýran valkost fyrir veiðimenn.