Sigþór Stein Ólafsson mætir í Veiðiflugur á laugardag og hnýtir flugur af þeirri næmni og þekkingu sem aðeins kemur með áratuga reynslu. Fyrir marga veiðimenn er nafn Sigþórs vel kunnuglegt, enda hefur hann lengi verið virkur í fluguveiðisamfélaginu, við veiðar, hnýtingar og í leiðsögn.
Sigþór heldur meðal annars úti hlaðvarpinu Hylurinn, þar sem fluguveiði og fluguhnýtingar eru teknar til ítarlegrar umfjöllunar af einlægni og fagmennsku. Hann hefur lagt stund á fluguveiði og fluguhnýtingar í fjölmörg ár og starfað við leiðsögn veiðimanna víða um land. Sú reynsla endurspeglast í nálgun hans við hnýtingaborðið, þar sem áhersla er lögð á flugur sem ekki aðeins líta vel út, heldur skila raunverulegum árangri.
Undanfarið hafa þurrflugur átt hug hans allan og líklegt er að slíkar flugur líti dagsins ljós þegar hann sest við væsinn í Veiðiflugum. Áherslan verður á flugur fyrir urriða, sérstaklega þær sem hafa reynst vel í Mývatnssveit og Laxárdal, svæðum sem Sigþór þekkir vel og ver mörgum dögum á hverju sumri við veiðar. Gestir fá tækifæri til að fylgjast með hnýtingum frá grunni, sjá ólíkar aðferðir, efnisval og hvernig nokkrar af eftirlætisflugum Sigþórs verða til.
Starfsfólk Veiðiflugna verður jafnframt á staðnum og veitir aðstoð og ráðgjöf varðandi fluguhnýtingaefni og búnað.
20% afsláttur er af öllum hnýtingavörum!
Við hlökkum til að taka á móti veiðimönnum og áhugasömum hnýturum í Veiðiflugum, laugardaginn 7. febrúar, milli kl. 12 og 15.
