Febrúarmánuður hefur á síðustu árum fest sig í sessi sem mánuður fluguhnýtinga. Kristján Friðriksson er upphafsmaður átaksins Febrúarflugur, sem hófst með stofnun samnefnds Facebook-hóps fyrir þrettán árum síðan. Markmiðið er að veiðimenn setjist við hnýtingaborðið, gefi sköpunargleðinni lausan tauminn og deili myndum af afrakstrinum. Þátttaka hefur verið mikil á undanförnum árum og birtast árlega myndir af yfir 1.000 flugum. Febrúarflugur hafa þannig fest sig í sessi sem hvatning til að hnýta, deila og njóta ferlisins.
Stóraukið framboð af hnýtingaefni
Undanfarna mánuði höfum við stóraukið framboð af fluguhnýtingaefni og bætt við yfir 1.000 nýjum vörunúmerum. Markmiðið er að bjóða upp á enn fjölbreyttara úrval fyrir hnýtara á öllum stigum – hvort sem áherslan er á laxa- eða silungaflugur.
Meðal nýrra vara má meðal annars finna:
• Hágæða hnýtingaefni frá Wapsi
• Gríðarsterka króka frá Hanak
• Tungsten-kúlur og dubb frá Fulling Mill
• Svakalegt úrval af fjöðrum, hárum og öðru hnýtingaefni frá Veniard
Afsláttur af öllum hnýtingavörum allan febrúar
Í tilefni af Febrúarflugum bjóða Veiðiflugur 20% afslátt af öllum hnýtingavörum allan febrúar. Afslátturinn gildir einnig af nýjum vörum, þannig að þetta er kjörið tækifæri til að fylla á efnið, endurnýja áhöld eða prófa eitthvað nýtt við hnýtingaborðið.
Meðal vörumerkja sem verslunin býður upp á eru:
Veniard, Stonfo, Wapsi, Loon, Hanak, Frödin, Semperfli, Fulling Mill, Marryat, Kamasan og Mustad.
Hvort sem þú tekur virkan þátt í Febrúarflugum eða notar mánuðinn einfaldlega til að undirbúa komandi veiðitímabil, þá er febrúar fullkominn tími til að hnýta, læra og njóta.
Skoða vöruflokka