Veiðimessa – Sumarhátíð í Veiðiflugum

Við fögnum veiðisumrinu með sannkallaðri veiðiveislu í Veiðiflugum, laugardaginn 31. maí.

Það verður grillað, spjallað, kastað og spáð í spilin – sumarhátíð sem enginn veiðiáhugamaður ætti að láta fram hjá sér fara. Ólafur Helgi Kristjánsson og hans fólk á Brasserie Kársnes sjá um veitingarnar og Ölgerðin um drykkina. Við setjum upp veiðitjald með afslöppuðu andrúmslofti og skemmtilegri fjölskyldustemningu.

Dagskráin er fjölbreytt og höfðar vonandi til allra – hvort sem þú ert að leita að nýjustu græjunum, langar að prófa búnað, spreyta þig í kastkeppni eða einfaldlega slaka á með góðum veitingum og notalegum félagsskap.

Grillum og gleðjumst

Á meðal þess sem verður í boði:

  • Happdrætti með fjölda veglegra vinninga
  • Sérhannaðar flugulínur – þróaðar af Veiðiflugum
  • Sumartilboð á fjölbreyttum veiðibúnaði
  • Nýjustu vörur frá Patagonia, Loop, Fishpond, Guideline og fleiri framleiðendum
  • Vörukynningar og persónuleg ráðgjöf
  • Nýjar flugur – meira úrval en nokkru sinni fyrr
  • Kastkeppni fyrir þá sem þora
  • Kastaðstaða þar sem hægt er að prófa stangir og línur
  • Kynning á nýju veiði-appi
  • Gómsætur matur og drykkir í veiðitjaldinu

Við hlökkum til að sjá ykkur og njóta dagsins með okkur.
Öll velkomin – sjáumst í Veiðiflugum laugardaginn 31. maí!