Við fögnum veiðisumrinu með sannkallaðri veiðiveislu í Veiðiflugum, laugardaginn 31. maí.
Það verður grillað, spjallað, kastað og spáð í spilin – sumarhátíð sem enginn veiðiáhugamaður ætti að láta fram hjá sér fara. Ólafur Helgi Kristjánsson og hans fólk á Brasserie Kársnes sjá um veitingarnar og Ölgerðin um drykkina. Við setjum upp veiðitjald með afslöppuðu andrúmslofti og skemmtilegri fjölskyldustemningu.
Dagskráin er fjölbreytt og höfðar vonandi til allra – hvort sem þú ert að leita að nýjustu græjunum, langar að prófa búnað, spreyta þig í kastkeppni eða einfaldlega slaka á með góðum veitingum og notalegum félagsskap.
Grillum og gleðjumst
Á meðal þess sem verður í boði:
- Happdrætti með fjölda veglegra vinninga
- Sérhannaðar flugulínur – þróaðar af Veiðiflugum
- Sumartilboð á fjölbreyttum veiðibúnaði
- Nýjustu vörur frá Patagonia, Loop, Fishpond, Guideline og fleiri framleiðendum
- Vörukynningar og persónuleg ráðgjöf
- Nýjar flugur – meira úrval en nokkru sinni fyrr
- Kastkeppni fyrir þá sem þora
- Kastaðstaða þar sem hægt er að prófa stangir og línur
- Kynning á nýju veiði-appi
- Gómsætur matur og drykkir í veiðitjaldinu
Við hlökkum til að sjá ykkur og njóta dagsins með okkur.
Öll velkomin – sjáumst í Veiðiflugum laugardaginn 31. maí!
Guideline Elevation 9' #7
Loop Evotec G5 7/9
Waterfall Drykkjamál
Loop 7X 10' #7
Loon Deep Soft Weight - Sökkefni
Patagonia Broadcaster Hat R. Green Derhúfa
Loon Easy Dry - Þurrfluguefni
Tacky Daypack Flugubox Orange
Reiða Öndin - Snúra
Patagonia Guidewater S. Green Vatnsheldur Bakpoki
Loop Opti Dryfly - Black 