Stonfo Thread Cutter er einfalt en snjallt verkfæri sem flýtir fyrir síðustu skrefum í fluguhnýtingum. Þessi vandaði skerari notar beittan V-laga blaðodd sem sker hnýtingarþráðinn nákvæmlega við hnútinn – hvort sem þú ert að hnýta þurrflugu, púpu, laxaflugu eða stóra straumflugu.
Snilldin felst í því að blaðið er aðeins beitt fremst í V-inu, þannig að nærliggjandi efni eins og fjöðrum, væng eða dubbing er ekki spillt við klippinguna. Þar að auki er á bakendanum oddmjó nál, sem hentar bæði sem dubbing-nál og til að setja límdropa á réttan stað með nákvæmni. Þetta er eitt af þeim tólum sem maður notar aftur og aftur.
Helstu eiginleikar:
- Þráðaskeri með beittu V-laga blaði
- Klippir náið og nákvæmlega við hnút
- Skemmir ekki nærliggjandi efni
- Meðfylgjandi nákvæm nál fyrir dubbing eða lím
- Endingargott og hannað fyrir fluguhnýtingar
- Framleitt á Ítalíu
Loon Small Caddy Smábrúsafesting
Loop Z1 Tvíhendupakki 12,4' #7
Loop Z1 Einhendupakki 9,6' #7
Þræðari Elite 1,4 mm
Echo Lift Einhendupakki 9' #7
Loop ZX Einhendupakki 10' #8
Loop 7X 10' #7
Loop ZX Einhendupakki 10' #6
Leech Cleaning - Gleraugnasprey
Loop ZT Tvíhendupakki 12,2' #6
Stonfo Hair Stacker - Hárjafnari 

