SALAR Duke Hunter Green TWO – 7/9 Fluguhjól
Duke TWO er sterkt, vel útfært fluguhjól fyrir þá sem vilja öflugt og nákvæmt hjól við fjölbreytt skilyrði – hvort sem veitt er með switch-stöng eða styttri tvíhendu. Það passar sérstaklega vel á 11–13 feta stangir í línuþyngdum #7-9, og veitir stöðugleika án þess að þyngja settið.
Hjólið er rennt úr slitsterku og saltvatnsþolnu áli með möttu yfirborði. Það ber með sér tímalaust útlit með nútímalegri verkfræði – þar sem hver smáatriði þjónar tilgangi. S-laga sveif með fílabeinalituðu handfangi og messingmótvægi gefur klassískt jafnvægi, og breið, fáguð spólurönd býður upp á mjúka lófabremsu ef þess þarf.
Innsigluð 10 kg diskabremsa tryggir örugga mótstöðu í átökum, og er stýrð með stjörnulaga messinghnappi sem liggur vel í fingrum. Við þumalfingurinn er aukahnappur til að kveikja eða slökkva á hljóði hjólsins, allt eftir smekk veiðimannsins – hvort sem þú vilt næði eða nýtur þess að heyra hjólið „syngja“. Hjólið kemur í vönduðu leðurhulstri með blindpressuðu merki og auðvelt er að breyta um handarstillingu.
Helstu eiginleikar:
• Fyrir stangir í línuþyngd #7–9 – kraftmikið og áreiðanlegt
• 10 kg innsigluð diskabremsa – stillanleg með einum snúningi
• Stjörnulaga messingbremsuhnappur – nákvæm stjórn
• Hljóðhnappur (on/off) – stillanlegur eftir þörf
• S-laga sveif með fílabeinalituðu handfangi og messingmótvægi
• Pólerað anodiserað ál – saltvatnsþolið og endingargott
• Breið spólurönd fyrir lófabremsu
• Grafið laxamerki á hliðum
• Snúanlegt fyrir vinstri eða hægri hönd
• Kemur í blindpressuðu leðurhulstri
• Litur: Matte Hunter Green
Tæknilýsing:
• Stærð: #7/9
• Þvermál: 96 mm
• Spólubreidd: 55 mm
• Þyngd: 305 g
• Rýmd: 150 m af 40 lb undirlínu + skothaus og lína