SALAR Duke Hunter Green ONE – 6/8 Fluguhjól
Duke ONE er minnsta hjólið í Duke-línunni frá Frödin – létt en afkastamikið, með nákvæma stjórn og sömu öflugu bremsukerfi og stærri systkini þess. Þetta er hjólið fyrir þá sem veiða sjóbirting og lax með 9–11 feta einhendum eða switch-stöngum í línuþyngd #6/8.
Hjólið er rennt úr vönduðu áli, með messing-smáatriðum og S-laga sveif með fílabeinalituðu handfangi. Stjörnulaga bremsuhnappurinn er nákvæmur og auðvelt að stilla hann á meðan bardagi stendur yfir. Hnappur úr messing er stillanlegur – þú velur hvort hjólið syngur eða þegir. Í hjólinu er innsigluð diskabremsa með allt að 10 kg afli, sem stillist með einum snúningi – hvort sem þú þarft létta mótstöðu fyrir granna tauma eða fullan kraft í stórum fisk. Þrátt fyrir getu vegur hjólið einungis 280 grömm og hentar því einstaklega vel fyrir léttari stangir.
Hjólið kemur í vönduðu leðurhulstri með blindpressuðu merki, og auðvelt er að breyta um snúningsátt fyrir vinstri eða hægri hönd.
Helstu eiginleikar:
• Létt hjól með miklu afli – fyrir einhendur og switch-stangir
• 10 kg innsigluð diskabremsa – stillist með einum snúningi
• Stjörnulaga bremsuhnappur fyrir nákvæma stillingu
• Messing-hnappur – on/off stillanlegur
• S-laga sveif með fílabeinalituðu handfangi og messingmótvægi
• Pólerað anodiserað ál – saltvatnsþolið og slitsterkt
• Útskorið laxamerki
• Snúanlegt fyrir vinstri eða hægri hönd
• Kemur í blindpressuðu leðurhulstri
• Litur: Matte Hunter Green
Tæknilýsing:
• Stærð: #6/8
• Þvermál: 85 mm
• Spólubreidd: 55 mm
• Þyngd: 280 g
• Rýmd: 100 m af 30 lb undirlínu + skothaus og lína