SALAR Daisy Black THREE – 8/10 Fluguhjól
Salar Daisy THREE er hjartað í Daisy línunni – sterkt og öruggt fluguhjól fyrir alvöru laxveiði í meðalstórum og stórum ám. Það passar sérlega vel með 13–15 feta tvíhendum í línuþyngd #8-10, og er vinsælasta stærðin í Daisy-seríunni – af góðri ástæðu.
Hjólið er rennt úr póleruðu og saltvatnsþolnu áli, með klassískri S-laga sveif og fílabeinalituðu handfangi. Blómalagaður útskurður á hliðunum gefur Daisy hjólunum sitt einstaka útlit. Bremsuhnappurinn úr messing er táralaga og liggur vel í hönd, jafnvel í köldum og blautum aðstæðum.
Innsigluð 4 kg diskabremsa tryggir mýkt og jafnvægi í lengri köstum og átökum við stóra fiska. Stillanlegur smellari er þar sem þumallinn hvílir og bætir við hljóði og tilfinningu í veiðina. Daisy THREE kemur í vönduðu leðurhulstri með blindpressuðu merki – rétt eins og öll Daisy hjólin.
Helstu eiginleikar:
• Traust hjól fyrir tvíhendur í línu #8–10
• 4 kg innsigluð diskabremsa – slétt og stöðug mótstaða
• Klassísk S-laga sveif með fílabeinalituðu handfangi
• Daisy útskurður á hliðum – blómalagað mynstur
• Stillanlegur smellari (on/off)
• Rennt úr póleruðu, slitsterku áli
• Silfurlitað laxamerki
• Kemur í blindpressuðu leðurhulstri
• Litur: Svart
Tæknilýsing:
• Stærð: #8/10
• Þvermál: 103 mm
• Spólubreidd: 50 mm
• Þyngd: 370 g
• Rýmd: 200 m af 60 lb undirlínu + skothaus og lína