Rangá – Skothaus (Flot)

Rangá er mjög stuttur Skagit-haus sem virkar frábærlega með þungum sökkendum. Línan getur kastað stórum flugum og þyngstu sökkendum án mikillar fyrirhafnar. Hún er tilvalin til notkunar í stærri laxveiðiám þar sem koma þarf flugunni niður til fisksins.

16.900kr.

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Rangá – Skothaus (Flot)

Rangá (Core16) er sérhönnuð tvíhendulína frá Nextcast, þróuð fyrir krefjandi aðstæður. Skothausinn er mjög stuttur Skagit-haus sem hleður stöngina á skilvirkan hátt og kastar þyngstu sökkendum og stórum flugum án mikillar fyrirhafnar. Hún skarar fram úr öðrum sambærilegum línum – sérstaklega þegar notaðir eru T-14 eða T-18 sökkendar. Línan er mjög hentug þar sem þörf er á hámarksafli á litlu svæði – til dæmis við veiði með takmörkuðu bakplássi eða þegar kasta þarf þungum flugum við krefjandi aðstæður.

Rangá er kjörin fyrir stærri laxveiðiár þar sem djúpir hylir og straumþung vatnsföll krefjast kraftmikillar línu. Hún hefur reynst frábær í ám á borð við Eystri- og Ytri Rangá, Ölfusá, Þjórsá, Hvítá, Blöndu og Skjálfandafljót. Þrátt fyrir mikla burði getur Rangá einnig verið fínleg í framsetningu með réttum línuenda – sem gerir hana að fjölhæfu og sveigjanlegu verkfæri.

Rétt pörun skilar hámarksafköstum

Rangá er fjölenda (Multi Tip) lína og skal ávallt notast með viðeigandi línuenda. Heildarþyngd línunnar (skothaus + endi) þarf að vera í samræmi við skráð Skagit-þyngd viðkomandi tvíhendu. Þar sem skothausinn er stuttur og samþjappaður, er mælt með að velja um 50 grainum léttari línu en stöngin er gefin upp fyrir.

Dæmi: Ef stöngin er skráð fyrir 550–600 grain Skagit, skal miða við 550 grain. Þá væri heppilegt að nota 450 graina skothaus og 12 feta (105 graina) enda, sem saman mynda 555 grain – sem er hæfilegt miðað við tilgreinda þyngd stangarinnar.

• Fyrir línur undir 450 grain: 12 feta endi (105 grain)
• Fyrir línur yfir 450 grain: 15 feta endi (135 grain)

Helstu eiginleikar:

  • Mjög stuttur og öflugur Skagit skothaus
  • Fullkomin fyrir þungar flugur og sökkenda (t.d. T10, T14, T18)
  • Hleður stöngina hratt og skilvirkt – jafnvel á þröngu svæði
  • Virkar vel með fjölbreyttum línuendum
  • Öflugur kjarni, endingargóð kápa og ID-merking til auðkenningar
  • Traustar lykkjur á báðum endum